Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1835
1835
1835

Í embættum hátt um Fjölni fátt

Hljóðbrot0:00

Lag Veröld fláa

ÍÍ embættum hátt um Fjölni fáttfannst - og smátt - sem bændumskynjuðu brátt að gaman gráttgætu átt í vændum.

Glúmur Gylfason · 1835

Heimildir og samhengi

Byrjar göngu sína ársritið Fjölnir og kom út níu sinnum til 1847.
Fjölnismenn voru: Brynjólfur Pétursson (1810-1851), Jónas Hallgrímsson (1807-1845), Konráð Gíslason (1808-1891) og Tómas Sæmundsson 1807-1841). Embættismenn tóku illa hugmynd þeirra um endurreist Alþing á Þingvöllum nema Bjarni Thorarensen.

Sverrir Kristjánsson, Ritsafn I, 186: ,,...allt frá þeirri stundu, er fyrst verður vart pólitískra hræringa með Hafnarstúdentum, má merkja, að átök verða með þeim og embættismönnunum heima á Íslandi".

Árni Helgason (1777-1869), stiftsprófastur og biskup að nafnbót, og fleiri, svo sem séra Sveinn Níelsson (1801-1881), gagnrýndu Fjölni í Sunnanpóstinum og Sigurður Breiðfjörð fenginn til að taka undir í bundnu máli og engu létu þeir Jónas ósvarað (1836, 1837 og 1845, 1846).

Jarðeigendur voru heldur ekki ginnkeyptir fyrir hugmyndum franskra byltingarmanna auk þess sem Fjölnir taldi þilskipaútgerð geta staðið undir fólksfjölgun í landinu - og verra gat það varla orðið, að áliti þeirra sem gerðu vinnumenn út á vertíðir og voru þess dæmi að bændur gæfu hundi nafnið Fjölnir.

Sbr. Aðalgeir Kristjánsson á bls. 64 í Nú heilsar þér á Hafnarslóð.
Þar er og á bls. 272 þessi klausa úr bréfi Sveinbjarnar Egilssonar til Jóns Sigurðssonar frá 15/2 1836: ,,Allir eru hér upp á móti Fjölnir, sumir bölva honum, sumir kveða um hann níðvísur, sumir kritisera hann á prenti".

Einar Laxness, Íslands saga I, 137: ,,Jónas Hallgrímsson var boðberi rómantísku stefnunnar, en Tómas Sæmundsson ritaði undir sterkum áhrifum frá upplýsingarstefnu 18. aldar. Ritinu var í upphafi misjafnlega tekið, m.a. vegna ádeilu Jónasar á rímnagerð Sigurðar Breiðfjörðs".

Ingi Sigurðsson, Erlendir straumar og íslensk viðhorf, bls. 144: ,,Verk þeirra (Fjölnismanna) í lausu máli urðu ekki mjög áhrifarík. Telja má að ljóð Jónasar hafi haft meiri áhrif á þjóðernisvitund landsmanna en skrif Fjölnismanna í lausu máli".
bls. 68-69: ,,...töldu (upplýsingarmenn) Íslendingum hafa orðið til heilla að komast undir stjórn Danakonunga og forðuðust að gangrýna hana. Íslendingar af næstu kynslóðum skírskotuðu mjög til þess í baráttu sinni fyrir auknu sjálfsforræði að sitthvað hefði farið úrskeiðis í stjórn Dana á landinu, og þeir litu á þjóðveldisöld sem gullöld þjóðarinnar".
Sbr. Jónas ,,...Þá riðu hetjur um héruð og skrautbúin skip fyrir landi flutu með fríðasta lið ...hingað í sælunnar reit".

Kristján Albertsson, Menn og málavextir, bls.132-3: ,,Ást sú til íslenskrar tungu sem Fjölnismenn tóku í arf frá Rasmus K. Rask og Sveinbirni Egilssyni hefur reynst það örlagavald sem mestu hefur ráðið um þróun ritmálsins fram til síðustu tíma. Með hreintungustefnu sinni bannfærðu þeir hið dönskuskotna mál. ...Skáldaskóli 19. aldarinnar orti ...á snjallara mál en höfundar næstu alda á undan".

Sjá og Ritsafn Eyjólfs Guðmundssonar, bls. 70.

Vefurhugsjonarmadurinnjonasblog.wordpress.com (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1834Danaprins kemur, Dillon fer1836 →Fjölnir veitti Sveini svar: