Bjarni og Tómas gerast grannar
Lag Ó, hve dýrleg er að sjá
Bjarni og Tómas gerast grannargægst ei fáum um þann múr.Reyndust ei þær rúnir sannarsem rakti Finnur til Hilditannarallt var það í öðrum dúrundan jökli sorfið flúr.
Heimildir og samhengi
+ Bjarni Thorarensen f. 1786, skáld og amtmaður NA;
+ sr. Tómas Sæmundsson f. 1807, Fjölnismaður (1835);
Kristleifur Þorsteinsson segir í Byggðum Borgarfjarðar II, 323, að fullyrt sé að Tómas Sæmundsson (1807-1841) hafi borið berklaveikina í sér sunnan frá Frakklandi.
Þeir Bjarni báðir markaðir af þjóðernisrómantíkinni sem efldist í Danmörk eftir fólskuárásir enskra á Kaupmannahöfn 1801 og 1807, þar sem Bjarni barðist með Dönum.
Þeir Bjarni og Tómas voru refsiglaðari (1839, 1832) en Magnús Stephensen. Þeir vildu og endurreisa alþingi á Þingvöllum. Var Bjarni einn um þann stað í embættismannanefndinni 1839 enda orti Jónas eitt sitt ágætasta ljóð um hann látinn. Magnús, dómsforsetinn, var svo alfarið á móti endurreisn alþingis enda ósnortinn af rómantíkinni – upplýsingarmaðurinn.
Finnur Magnússon (1781-1847) féll í áliti sem rúnafræðingur þegar J. J. A. Worsaae sýndi fram á 1844 að ætlaðar rúnir í Runamo í Bleking væru jökulrákir, en Finnur las 1841 úr þeim dróttkveðna vísu og ritað 743 blaðsíðna bók þar um. Þar sagði að Haraldur Hilditönn hefði á leið sinni um Runamo til orrustu á Brávöllum við Hring Svíakóng á 8. öld látið rita þarna ákall til guðanna um sigur.
Brávellir ýmist sagðir á eystra hluta Gotlands eða í Smálöndum, þ.e., í Svíþjóð.
Nánar: AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)