Hjá brúarsnurðum smaug sem smurður
Lag Langt fyrir utan ystu skóga
Hjá brúarsnurðum smaug sem smurðursmiður án lurðu, Gunnarsson,þyngri burður varð Skúla Skurðurog skafli urðaður Salómon.
500 árum fyrr þó varferja við Kaldaðarnesað þar manni frítt sé farí Fornbréfasafni les.
Heimildir og samhengi
Tryggvi Gunnarsson (1835-1917) stóð fyrir verki þegar smíðuð var brú yfir Ölfusá. Mynd:
Myndmenningarstadur.123.is (opnast í nýjum flipa)
Jón Gíslason: Úr farvegi aldanna, I, bls. 164: ,,Tryggvi sá farveg árinnar markaðan af klettaveggjum ...gat ekki að líta betra brúarstæði á stórá á Íslandi öllu en var hjá Selfossi".
Guðmundur Kristinsson, Styrjaldarárin á Suðurlandi, bls. 50: ,,Ölfusárbrú, hengibrú sem breskir verkfræðingar settu á ána sumarið 1891, fyrir daga ...bifreiða í landinu. Hún var aðeins 2,5 m á breidd og átti að geta borið þúsund manns eða 7 tonna þunga".
Guðmundur Kristinsson rekur í Sögu Selfoss, 1. bindi, bls. 121 til 158 sögu Ölfusárbrúar fyrri (fyrstu) og leitar m.a. fanga hjá Bergsteini Jónssyni (d. 2006) sem áður hafði kynnt þá sögu í grein.
Vefurleitir.is (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Árni Óla segir eftir Jóni Sverrissyni í Aldaskilum, bls. 43-44, að ferjutollur hafi verið 25 aurar fyrir manninn áður en brúað var, en það var sama og tímakaup verkamanns í uppskipunarvinnu í Reykjavík á þeim árum. Skv. bls. 80 var venjulegt árskaup vinnumanns í Skaftfellssýslu á 10. áratugnum 60 kr., en föt, fæði og húsnæði frítt.
25 aurar voru þá einn fiskur (Guðni Jónsson, Saga Hraunshverfis, bls. 130).
Vefurmyndir.myndasetur.is (opnast í nýjum flipa)
Skúli Thoroddsen (1859-1916), sm. Ísafjarðarsýslu, rannsakaði dauða Salómons G. Jónssonar (f.1862) sem morðmál er hann varð úti á Klofningsheiði 21. desember 1890 og almannarómur taldi hvalskurðarmanninn Sigurð ,,skurð” Jóhannsson (1862-1925) valdan að dauða hans. Hér af spruttu þau hin illvígu ,,Skúlamál", sem lauk með sýknu Skúla í Hæstarétti 1895.
(Sjá 1870, 1892, 1893, 1895, 1908, 1909).
Heimildir:
Tryggvi Gunnarsson, ævisaga rituð af Kristjáni Albertssyni.
Ævisaga Skúla Thoroddsen, rituð af Jóni Guðnasyni.
Gunnar Karlsson, Fornir hættir lV, 227: ,,Til er máldagi ferju við Ölfusá, óvíst hve gamall, en varðveittur í máldagasafni frá 1397. Ferjan átti eignir, meðal annars þrjár kýr. Eigandi Kaldaðarness í Flóa átti að varðveita féð, hafa til flutningaskip, flytja alla menn óleigis en taka leigu fyrir annan flutning. En bæjarnafnið Kaldaðarnes mun upphaflega vera Kallaðarnes, kennt við kallaðinn, það að kalla á ferju yfir ána". (Íslenskt fornbréfasafn l (1857-76), 319-20 (nr. 86)).