Waage synti úr Viðey í land
Lag Í friði látinn hvíli hér - SB 275
Waage synti úr Viðey í landviðræður Eggerz og kóngs í strand- ríkisráðsákvæðisuppistand -eins og þá skotinn var Ferdinand.
Heimildir og samhengi
(Tölurnar 1 til 4 í meginmálinu vísa til skýringa í lokin).
Benedikt Waage svam úr Viðey að Völundarbryggju á 1 klst. og 56 mínútum. (Öldin okkar).
Frans Ferdinand erkihertogi, ríkisarfi keisaradæmisins Austurríki-Ungverjaland, var skotinn til bana sd. 28. júní. Fyrri heimsstyrjöldin byrjaði mánuði síðar.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Íslendingar höfðu um annað mikilvægara að hugsa. Þennan sunnudag boðuðu þingmenn Reykjavíkur til stjórnmálafundar í porti barnaskólans við Tjörnina sem upphitun fyrir þingsetningu á miðvikudegi. Mál málanna 1896 til 1916 var ríkisráðsákvæðið. Það, og morðið í Sarajevo voru birtingarmyndir þjóðerniseldmóðs, sem leiddi til heimsstyrjaldar á meginlandinu. en pólitískrar Sturlungaaldar hér:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Ráðherra Íslands, Sigurður Eggerz (1875-1945), sagði af sér 1. des. þegar kóngur féllst ekki á Fyrirvara, saminn af Einari Arnórssyni (1880-1955) um það hvar konungur skyldi undirrita lög frá alþingi. Fyrirvarinn var ,,tylliástæða tækifærissinnaðra pólitíkusa og vandfundinn sá sem ekki hafði skipt oftar en einu sinni um skoðun á ákvæðinu”. 2.
SAGA LX-I, 2022, bls. 239: ,,Sigurður Eggerz, forsætisráðherra 1914-1915, sagði af sér embætti af prinsípástæðum vegna deilna við Dani. Ástæðan næsta óskiljanleg flestum núlifandi, þar með talið sagnfræðingum".
Bjarni Benediktsson, síðar rh. í Andvara 1962: ,,Fáir áttuðu sig þá til hlítar á ágreiningsefninu (ríkisráðsákv.) og enn færri nú”.
Lausn fannst: kóngur gerði höfund Fyrirvarans, Einar Arnórsson, að ráðherra um miðjan maí 1915. Lýsti Einar þá yfir, að ,,geigurinn” í Fyrirvaranum væri ,,formlegs / fræðilegs eðlis” og náðist þá meirihluti 1915 fyrir breyttri stjórnarskrá sem færði fána, kjörgengi kvenna og Lands- í stað konungkjörinna þingmanna. Einu atkvæði munaði að Danahatur rýmdi rauða litnum úr fánanum. (Sjá 1939). Heimastjórnarflokkur Hannesar Hafstein studdi Sjálfstæðisflokksmanninn (gamla), Einar Arnórsson, til þessara verka þegar Sigurður Eggerz, Bjarni frá Vogi og 9 Sjálfstæðismenn, gamla, urðu ,,þversum".
Stjórnarskrárbreyting sem veitti konum kosningarétt, þjóðfáni, landskjörnir þingmenn í stað konungkjörinna, og fjölskipuð ríkisstjórn, var ekki nóg til að þeir yndu við ríkisráðsákvæðið, en ,,voru andvígir hvers kyns málamiðlunum” (Gunnar Þór Bjarnason, Þegar siðmenningin fór fjandans til, bls. 271).
Með ríkisráðsákvæðið að vopni unnu þeir sigur í kosningum 1916, og þar settu konur ríkisráðsákvæðið ofar kosningarétti sínum, þær fáu sem mættu á kjörstað strikuðu Bríet Bjarnhéðinsdóttur út, sem þá féll. Sr. Sigurður Jensson í Flatey, bróðursonur Jóns forseta, skrifaði þá: ,,oflátungsskapur og gorgeir er orðinn einkenni þjóðarinnar... og fulltrúar hennar svo uppblásnir af þjóðarhroka að mér verður flökurt af að lesa þingtíðindi”, sem leiðir hugann að hátíðarræðu Bjarna frá Vogi af svölum Alþingishússins 17. júní, sem þar kallaði Dani blóðsugur, kújárn og Tyrki Norðurlanda.
Einar Ólafur Sveinsson, Á Njálsbúð, 41: ,,Mörður (Valgarðsson) ... hatar Gunnar og Njál þvílíku hatri, sem vanþakklætið eitt getur alið af sér".
Þrætan um ríkisráðsákvæðið, stóð frá 9/7 1896 og fór afstaða þingmanna eftir því hver stóð til að verða ráðherra hverju sinni. Íslenskir biskupar höfðu þó átt sæti í norska ríkisráðinu á meðan það var við lýði - til 1537. ,,A.m.k. frá 1904 tók danskur ráðherra aldrei til máls um lög frá Alþingi á ríkisráðsfundi enda fór þar aðeins fram formleg afgreiðsla þó andstæðingar Uppkastsins héldu öðru fram" 4.
Sex ritstjórar helstu blaða urðu í fyrsta og eina skipti sammála og sögðu í ,,Blaðamannaávarpinu” 1906, að velferð vor og þjóðarsómi ylti á ríkisráðsákvæðinu. Þar var einmitt notað það orðalag: ,,frjálst sambandsland við Danmörku”, sem þeir síðar felldu Uppkastið á 1908.
Gísli Jónsson alþm., Saga 1974. ,,Í ríkisráði", bls. 86:
,,Benedikt Sveinsson og Jón Sigurðsson féllust á ríkisráðsákvæðið 1869. Seinna fannst Benedikt það fjörráð við landsréttindi Íslands. Valtýingum fannst það skaðlaust 1897, and-Valtýingum stórháskalegt. Báðum flokkum fannst það meinlaust 1901, 1902 og 1903. Árið 1902 reynir Valtýr að gera það tortryggilegt, en 1903 samþykkir hann skaðleysi þess á Alþingi. Jón Jensson telur það stórhættulegt 1902, - hafði áður varið það í Ísafold. Árið 1906 leggja ritstjórar allra helstu blaða nema Heimastjórnarmanna áherslu á að fá það brott úr stjórnarskránni, þ.á.m. Skúli Thoroddsen, Björn Jónsson og Einar Hjörleifsson, sem allir höfðu áður talið það skaðlaust. Árið 1911 vilja bæði Sjálfstæðismenn og Heimastjórnarmenn losna við það úr stjórnarskránni. 1913 þykir miðstjórn Sjálfstæðisflokksins (gamla) og Skúla Thoroddsen þetta engu máli skipta. Sama ár finnst Einari Arnórssyni að búa þurfi til sérstakan fyrirvara um þetta efni. Tveimur árum síðar stendur hann fyrir samkomulagi sem gerði þennan fyrirvara að engu efnislega. ... Allan þann tíma sem þrefað var um ríkisráðsákvæðið, - menn bornir landráðabrigslum, ráðherrar sögðu af sér og flokkar stofnaðir og klofnir út af því, - voru sérmál Íslands borin upp í ríkisráðinu danska og kom aldrei að sök".
Gísli Jónsson: HeimildAlþingi (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Um Ríkisráðssetu Íslendinga fjallar Helgi Þorláksson í Sögu LIX-1, 2021, bls. 223.
1 Fyrirvarinn: ,,...uppburður sérmála Íslands fyrir konungi í ríkisráði verði hér eftir sem hingð til sérmál landsins.”
2 Saga 1974, bls. 86, Gísli Jónsson. HeimildAlþingi (opnast í nýjum flipa)
3 Brautryðjandinn, Skálholtsútgáfan 2011, bls. 429 og 449.
3 Íslandssagan í máli og myndum Rvk. 2005, bls. 272.
4 Íslandssagan í máli og myndum bls. 272.
Einar Laxness, Saga og minni, bls. 181 og Ísl. saga I, 158.
Tilvísun: Helgi Skúli Kjartansson segir í Ágripi af sögu Alþýðuflokksins, bls. 6 til 7, að eftir vinnutímadeilu við hafnargerðina í Reykjavík ~1914 hafi verið farið að tala um að þjóðfélagsþróunin leiði til vaxandi misskiptingar auðs og valda, stjórnmálaflokkarnir allir þjónar ráðandi stéttar og slái ryki í augu almennings með marklausum þrætum um sambandið við Dani.
Fyrri heimsstyrjöldin.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)