Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1949
1949
1949

Löngum hefir þessi þjóð

Hljóðbrot0:00

Lag Land míns föður

LLöngum hefir þessi þjóðþráttað, deilt og vegistá Austurvelli' af miklum móðmótmælt, grátið, slegist.

Þeim sem virtist græðgin góðgaf hún banka og sparisjóðfyrst að af sér Icesave stóðenn að mammon hneigist

Glúmur Gylfason · 1949

Heimildir og samhengi

Ófriðlegt við Alþingishúsið á Austurvelli 31. mars þegar samþykkt var innganga Íslands í NATO.
Beitti lögreglan þá táragasi.

Vefurviljinn.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

2. erindið vísar til svipaðra atburða á sama stað 2008.
2012 byrjuðu bankar aftur að veita milljarðalán til hlutabréfakaupa.
2017 telur Rannsóknarnefnd Alþingis ,,kaupendur" að Búnaðarbankanum hafa beitt blekkingum í einkavæðingarferlinu 2002.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Um fyrirhugaðan ensk- eða fransk- fjármagnaðan banka sagði Jónas frá Hriflu spámannlega 1914:
,,Hvernig færi um fjármálafyrirtæki af þessu tagi ef við hefðum ekki til umsjár og forsjár nema hættulega glæframenn? Nei, framfarir eru góðar þá fyrst þegar foringjar og liðsmenn eru siðmenntaðir menn” - bls. 302 í bók Guðjóns Friðrikssonar: Einar Benediktsson II.

Hér er ekki tekin sú áhætta að fjalla frekar um samtímaatburðinn Icesave, en það gerir bók Forlagsins, ,,Íslandssaga í stuttu máli", á bls. 69.
(Sjá 1770, 1776, 1808).

Þar með, lýkur þessum annál áranna 1550 til 1949. Auk þess var fjallað um hverja öld fyrir sig á hennar lokaári.
Um öldina tuttugust er fjallað undir ártalinu 1950.

Kór Neskirkju syngur, stjórnandi Steingrímur Þórhallsson:

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1948Um hvort þiggja Marshall má1950 →Tuttugasta öldin gekk í garð við glaum og spil/