Frúin hans Gísla, hún Guðrún, veik
Lag Sá frjáls við lögmál
Frúin hans Gísla, hún Guðrún, veikfyr'ir greifum og höfðingjakyniátti svo konan við Castenskjold leiken kaupmaður gekkst við syni.
Heimildir og samhengi
Johan Carl Thuerecht von CastenschioldWikipedia (opnast í nýjum flipa), var stiftamtmaður á Íslandi 1813-1819. Sjá 1814.
Íslenskar æviskrár um Gísla Símonarson *~1774 í Málmey, kaupm. í Vestmannaeyjum, Reykjavík og Skagaströnd: ,,...kona: Guðrún Bjarnadóttir ... sonur þeirra (kallaður, en almennt talinn sonur Castenskjolds stiftamtmanns) Karl Gísli Gunnar, lögfræðingur í Kaupmannahöfn".
Í Kaupmannahöfn féll Gísli 1837 úr drosche (drossíu) sinni, þ.e., fjórhjóla hestvagni og lést. Vagnhjólið lenti á ójöfnu og féll drossían þá á hliðina en Gísli rotaðist er höfuð hans lenti á tré. Hann lést eftir að hafa legið viku á sjúkrahúsi, en aðra farþega sakaði ekki, þ.e., fyrrnefndan son frúarinnar og Grím Thomsen, þá stúdent.
Heimild: Aðalgeir Kristjánsson, Hafnarslóð, 259.
Árni Óla, Reykjavík fyrri tíma, bls. 365: ,,Það sumar (1813) sigldi Gísli eins og vant var. ...Var hann vetrarlangt ytra. En er hann kom heim var kona hans vanfær og þótti honum það með ólíkindum ...grunaði hann Castenskjold um að vera faðir að barninu og lenti í hart milli þeirra út af því. Segir Gísli Konráðsson það ,,almæli, að Castenskjold bætti Gísla fyrir sig með gjaldi eigi alllitlu”. Síðan seldi Gísli búslóð sína hér og sigldi með konu sína og börn þá um sumarið (1814) til Kaupmannahafnar og átti þar heima síðan”.
Margt segir Gísli Konráðsson frá Gísla Símonarsyni í Sögu Skagstrendinga og Skagamanna.
Gísli Símonarson kunni frá því að segja að á bernskuárum hans var skygn vinnumaður þar í Málmey sem jafnan gat með viku fyrivara sagt til um komu vorskipsins til Hofsóss. Var það vegna þess að hann sá til ferða álfaskipsins sem flutti kramvörur til huldufólks - væntanlega í Þórðarhöfða - og var jafnan viku fyrr á ferðinni en skip einokunarkaupmannsins á Hofsósi.
Í Þjóðsögum Jóns Árnasonar, V, 145, segir einmitt frá því þegar Málmeyingar gengu fram á huldusjómennina þar í fjörunni.
Verður nú hver að svara fyrir sig hvort verslun huldufólks hafi lotið sömu kóngsins lögum og verslun mannvera í landinu. Þegar Gísli er á 5. ári verður verslun frjáls öllum þegnum Danakonungs svo þetta gæti verið hvort heldur sem er: einokunar- eða frjáls verslun. Þeir sem trúa á tilvist huldufólks eiga þó í báðum tilvikum eftir að svara þeirri spurningu með hverju það hafi greitt álfakaupmanninum fyrir kramvörurnar.
Þá er eftir sá vandi, að álfar og tröll í löndum Danakonungs eru afar staðbundnar verur sem búa hver í sínum hól, hæð, tré eða háalofti, þ.e., trold og nisser, sem ekki eru líklegar til að sigla um úthaf, en íslenskir álfar hafa ekki getað smíðað haffær skip úr íslensku birki. Að þessu athuguðu treystir sér ekki sá sem hér ritar til að taka ábyrgð á að fyrrnefnd verslun hafi átt sér stað.
Úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar: ,,Önnur sögn er það, að kerling ein var í Laugarnesi, sem vön var að segja fyrir, hvenær skipin færu að koma í Reykjavík á vorin. Hafði hún það til marks, að huldu-skipið væri komið að Kleppi, næsta bæ fyrir innan Laugarnes, og hafði fyrsta skipið verið vant að vera komið til Reykjavíkur viku eftir það að kerling fór að spá því". (J. Á. Galdrasögur, bls. 13).