Að Frón stefni fram á við
Lag Pétur þar sat í sal
Að Frón stefni fram á viðei fyrir synjandisetur á Sjáland miðSímon á Dynjandi.
Heimildir og samhengi
Símon Sigurðsson frá bænum Dynjandi, Arnarfirði (1788-1859) ,,er fyrsti Íslendingur sem vitað er til að stýrt hafi skipi milli landa á síðari öldum”.
Tilvitnun í bréf dagsett í Kh. 1. okt. 1818. Fjórir synir hans skipstjórar og orðlagðir sægarpar: Sigurður, hjá Geir Zoega, Kristján, á Bíldudal og Akranesi, Friðrik, hjá Hákoni Bjarnasyni á Bíldudal, Páll, útvegsbóndi Stapadal, sá er síðastur skutlaði hvali af árabát með handskutli. Hann er móðurafi Jóns og Páls Matthíassona, skipstjóra hjá Kveldúlfi, þá Bjarni í Bauluhúsum (1823-1866), faðir Markúsar skólastjóra Stýrimannaskólans föður Sigurjóns, lfr., stjórnarráðsfulltrúa föður Rögnvaldar píanóleikara.
Sjá Guðm. Hagalín, Virkir dagar II, 233;
Sami höfundur lýsir afstöðu m.a. útgerðarbænda til þilskipa í bókinni Sonur Bjargs og báru, bls. 20.
Eftirtaldir gætu verið fyrstu íslensku millilandaskipstjórar eftir Ögmund Pálsson biskup, d. um 1541, og/eða séra Snorra Hjálmsson, sem prestur var orðinn að Holti u. Efj. 1523 og Biskupaannáll Jóns Egilssonar telur skipherra, sem ætla verður að hafi verið á Skálholtsskipi, en hvort hann eða Ögmundur hafi stýrt milli landa veit nú enginn:
,,Ólafur Thorlacius, átti 2 þilskip frá 1806 sem danskir stýrðu, en til hans ræðst sem skipstjóri 1809 Þorleifur Jónsson frá Tálknafirði, síðar kaupmaður á Bíldudal. Hann þá nýkominn með erlent skipstjórnarpróf, en Símon tekið próf um ári síðar".
Heimild: Gils Guðmundsson, Skútuöldin I, 84, 107, 136.
Skip Ólafs sigldu til Spánar með fisk, en tóku salt til baka. Sjá 1790.
Vigfús Guðmundsson segir í bókinni Breiðabólstaður í Fljótshlíð, bls. 32, að víða finnist ritað, að eftir að Ögmundur varð biskup hafi stýrt skipi Skálholtsstaðar til Noregs - en þó varla oftar en 2 eða 3 ferðir - sr. Þorvarður Eiríksson (á lífi 30. nóv. 1558), prestur á Breiðabólstað í Fljótshlíð. Síðan segir að eftir Þorvarð hafi bróðir hans, Sæmundur ríki í Ási, Holtum, stýrt skipinu, en ekki sagt hvort það hafi verið milli landa og gildir það líka Magnús Pétursson á Grafarbakka, bróðurson fyrrnefnds sr. Þorvarðar, en um hann segir í Menn og menntir, Páls Eggerts Ólasonar, II, 154, að hafi verið skipstjóri fyrir Ögmund á síðari árum hans. Um fjórða bróðurinn, Jón, er fjallað hér árið 1587.
Vefureuropeanwaterfalls.com (opnast í nýjum flipa)
VefurGuide to Iceland (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Vefurde-de.facebook.com (opnast í nýjum flipa)