Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1821
1821
1821

Kristrún Þorsteins, Þingeyingur,

Hljóðbrot0:00

Lag Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

KKristrún Þorsteins, Þingeyingur,þar til hagyrðingurhafði að auki fima fingurfirna- smiður slyngur.

Glúmur Gylfason · 1821

Heimildir og samhengi

Fárra hagorðra kvenna getið í fornum fræðum, hvað þá að kona sé sögð: ,,ágætur smiður og vel hagorð", en það gera útgefendur Sögu frá Skagfirðingum II í athugasemdum bls. 156.
Kristrún Þorsteinsdóttir (1751-1821), ekkja Símonar Bech, seinni kona Erlendar Pálssonar klh., bróður Hjálmars rektors og Bjarna landlæknis, fær þá umsögn. Móðir hennar var Dómhildur Eiríksdóttir, pr. Saurbæ, Eyjafirði, Þorsteinssonar, en faðir, Þ. Ketilsson prestur á Hrafnagili, sem Harboe lagði til að yrði biskup - en vildi ekki - en þótti fremstur kennimanna í Hólastifti.
Sonur Kristrúnar var sr. Þorsteinn Hjálmarsen, Hítardal.

Mál sitt sanna þeir útgefendur með vísu eftir Kristrúnu, hvers boðskap Listaskáldið hefði ekki tekið undir, en hún hafði búið fyrst með Símoni Bech á Bakka í Öxnadal, en þau fluttust þaðan að Kristnesi, Eyjafirði:

,,Öxnadalur tryggðatregur
töfraður farðu nú,
Eyjafjörður yndislegur,
aftur sæll vert þú".

(Saga frá Skagfirðingum II; Ísl. æviskrár).
Sjá 1719.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1821

  • Kjærnested nyrðra kennir sund
  • Skipbrotsmenn á Skaga hlutu
← 1821Kjærnested nyrðra kennir sund1821 →Skipbrotsmenn á Skaga hlutu