Fengið hafði sá vondi völd
Lag Hver sem að reisir hæga byggð
(Þá þú gengur í guðshús inn)
Fengið hafði sá vondi völdvirtu og fáir trúnaþjófa- hét hún þar þessi öld,í þeirri sýslu, Húna,siðferði hafði fundið brestvið langa fingur loddi flestlíkt því mun víðar núna.
Heimildir og samhengi
Björn Blöndal Auðunsson (1787-1846) fékk sýsluvöld í Húnavatnssýslu 1820 og tókst á við þá stigamennsku sem viðgengist hafði þar með afskiptalitlum sýslumanni, Jóni (~1747-1831) Jónssyni í Víðidalstungu og Reykjum í Miðfirði.
Séra Pétur Guðmundsson, Annáll 19. aldar, bls. 255:
(Eftir að fjallað hefur verið um nokkur húnvetnsk sakamál) ,,Um þessar mundir var margt fleira hreðusamt með Húnvetningum og gerðu sýslumann sinn lágan, því hann var friðsamt góðmenni, þótt vel væri hann skynsamur".
Hannes Pétursson ritar í Heimildaþáttum l, 101: ,,Skipti þá (með Blöndal) heldur en ekki um héraðsstjórn, og veitti ekki af, umdæmið var sundurgrafið af ólöghlýðni og jafnvel stigamennsku. Blöndal einsetti sér að hreinsa til eftir forvera sinn og ganga allt til botns í vilpunni. Það var mannsöldrum seinna að höfundar tóku að hossa vandræðagripum úr þeirri sýslu á þessum tíma og settu á höfuð þeim hött Hróa í Skíriskógi".
Vefurstefaniasteinunn.wordpress.com (opnast í nýjum flipa)
Skálmöldinni húnvetnsku (1829, 1830, 1832) talið lokið með Skárastaðamáli 1863. Má segja að úr öskunni rísi þá gullöld mennta og framfara með fjölda fremdar- og forystufólks á mörgum sviðum þjóðlífsins ásamt húsum byggðum úr timbri, Kornsá, og steini, Þingeyrakirkja (1877) að ógleymdu: harmoníum í kirkjur (1872) , Melstað, og á heimili. Flest á þetta rætur að rekja til breska gullsins sem kom með sauðasölunni: 1871-1896, sem aftur rekst til nýlendugróða Breta. (1858, 1864, 1872, 1881, 1884, 1896, 1900, 1926).
Ofanritaðar fullyrðingar má styðja með:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)