Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1824
1824
1824

Ei var hann við alþýðuskap

Hljóðbrot0:00

Lag Dvel ég í draumahöll

EEi var hann við alþýðuskapenga forsjá þekktiheimilis- á haldi taphústrú dönsk sem ektihvorki fólk né fé var tamtað fjalla um svo ríminotaríus og norðlenskt amtnægði ekki Grími.

Glúmur Gylfason · 1824

Heimildir og samhengi

Eftir lát am. Stefáns Þórarinssonar, 1823, varð amtmaður nyrðra Grímur Jónsson (1785-1849).
Mannleg samskipti og fjárgæsla þóttu ekki hans sterku hliðar. ,,Mikil skuldasöfnun gerði Grím örvinglaðan” (Eldur á Möðruv. 213).
Hann tvívegis am. á Möðruvöllum: 1824-1833 og 1842 til 1849 og jafn oft fógeti (notarius publicus) í Danmörk - í Middelfart https://wikitravel.org/en/Middelfart wikitravel.org (opnast í nýjum flipa)
og Skælskör MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa).
Hann var kvæntur danskri konu, Birgitte C. Breum, sem undi ekki á Íslandi og mátti Grímur halda tvö heimili þegar hann starfaði hérlendis í síðara skiptið.
,,Bjarni (am. Þorsteinsson) segir Birgitte ,,ekki nægilega þýða til að laga og mýkja hans köldu og vanstilltu geðsmuni ...og telur að Grímur hafi viðurkennt ...að betur hefði farið hefði hún stjórnað efnahag þeirra"" - frá Guðrúnu P. Helgadóttur af bls. 9-10 í ,,Kvennaskólinn í Reykjavík 1874-1974".

Þóra, dóttir hans, naut menntunar ytra, sem stúlkum var ekki heimil á Íslandi. Hún varð kona Páls Melsteð, sagnfræðings, og tókst með dönskum fjárstuðningi að stofna Kvennaskólann í Rvk. 1874, þrátt fyrir mikla andstöðu á Íslandi við svo óþjóðlegt fyrirbæri.
Það var landshöfðingjafrú, Olufa Finsen, sem fékk föður sinn, justitsráð Bojesen, til að gangast fyrir fjársöfnun í Danmörk til Kvennaskólans og varð honum mikið ágengt, segir Kristmundur Bjarnason á bls. 16 í ,,Langt inn i liðna tíð". (1874).
Að fé skyldi koma erlendis frá til kvennamenntunar sem og frá selstöðurverslun Örum og Wulf var til vitnis um óholl erlend áhrif á íslenskar stúlkur.

AlfræðiWikipedia (opnast í nýjum flipa)
HljóðritÍsmús (opnast í nýjum flipa)
FréttFréttablaðið (opnast í nýjum flipa)

Finnur Sigmundsson, ,,Þeir segja margt í sendibréfum", bls. 125: ,,...hann (Grímur) hefur jafnan áhyggjur af eigin högum og framtíð þrátt fyrir virðuleg embætti og að að því er ætla má, rífleg laun. ...Stolt var honum í blóð borið og munu fjármálaáhyggjur hafa haft sín áhrif á lundarfar hans".

Grímur lét grafa sig á Möðruvöllum í fátækrareit til merkis um ,,sitt fjáhagslega basl, sem hann átti í alla ævi”
ályktar Torfi K. Stefánsson Hjaltalín í Eldi á Möðruvöllum, bls. 460, en fyrri tilvitnunin er af bls. 213.
Sjá og ,,Amtmaðurinn á Einbúasetrinu”, ævisögu Gríms eftir Kristmund Bjarnason frá árinu 2008.

FréttVísir (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1823Kötlu enn í brók varð brátt1825 →Úr heimi Bólstaðarhlíðar Björn