Raunalega Reppi gekk
Lag Enginn grætur Íslending
Raunalega Reppi gekkþá ritgerðina varðiþar fyrir hinstu hvílu fékkí Hólavallagarði.
Heimildir og samhengi
Þorleifur Repp (1794-1857) var sonur Rósu Egilsdóttur pr. Útskálum, Eldjárnssonar og m.h., sr. Guðmundar Böðvarssonar, Kálfatjörn, Högnasonar ,,prestaföður” (sjá 1760). Sr. Þorvaldur sálmaskáld var því föðurbróðir hans. Um sr. Böðvar Högnason segja Íslenskar æviskrár 1, 292: ,,Þókti hann bæði harðlyndur og illskiptinn".
Þorleifur Repp lærði og starfaði lengst í Kaupmannahöfn. Hann kunni skil á 13 tungumálum og vitnar að auki í ritum til sanskrítar og grænlensku, en mistókst 6/2 1826 doktorsvörn við háskólann í Kh.
Hafði áður lítillækkað bróður annars andmælandans við doktorsvörn hans.
Andmælandinn var í hefndarhug og nýtti sér að Repp hætti til að fá hláturskast ef sinnaðist og fékk þá ekki hamið sig.
Gerðist Repp þá bókavörður í Edinborg.
,,Af misklíð við yfirbókavörð safnsins missti Þorleifur stöðu sína í Edinborg og settist aftur að í Kh. 1837” (Ísl. æviskrár).
Alfarinn fór hann af Íslandi 1814 - og þó ekki. Hann átti hámenntaða danska konu og a.m.k. tvö börn ytra en var svo ,,eldheitur Íslendingur” (Ísl. æviskrár). að hann vildi ekki dauður hvíla í danskri mold og var lík hans flutt til Íslands með fyrsta póst-gufuskipinu 1858 og hvílir í Hólavallagarði í Reykjavík.
Eftir bókaverðinum danskmenntaða, Reppi, er haft: ,,Aldrei hefur nokkur maður í nokkru landi nokkurn tíma haft nokkurt gagn af nokkurri danskri bók”.
Morgunblaðspistill og mynd af Þorleifi Guðmundssyni Repp:
Einar Ólafur Sveinsson, Á Njálsbúð, 41: ,,Mörður (Valgarðsson) ... hatar Gunnar og Njál þvílíku hatri, sem vanþakklætið eitt getur alið af sér".
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Saga LIX - I, 2021, birtir ritgerð Sveins Mána Sigurjónssonar, Þrældómur og frelsi, sem frá bls. 96 fjallar um Þorleif Repp, sem m.a. að beiðni innanríkisráðherra Breta, samdi rit um þróun enskra kviðdóma. Repp ,,tengdi saman frelsi og framfarir ... en konungsríki hnepptu þjóðirnar í ánauð einstakra manna ... reyndi Þorleifur að sannfæra Íslendinga um að taka sér Englendinga til fyrirmyndar til að endurvekja hið forna frelsi við nútímalegri aðstæður. ... Persónu- og heilsubrestir komu í veg fyrir að Þorleifur yrði áberandi í íslenskum stjórnmálum eftir einveldisafsal Danakonungs".
Heimildir: Ísl. æviskrár; Steingrímur Matthíasson, Annað líf, bls. 109;
Árni Óla, Strönd og Vogar, 192.
Tilvísun: Tómas Guðmundsson, gerir Repp skil í Gamlar slóðir, frá bls. 181.