Breiðfjörð fær eigi betur ort
Lag Nú látum oss líkamann grafa
Breiðfjörð fær eigi betur ortBjörn hefur lokið við Íslandskorttil menntunar er meira horftog mislingar herja land á vort.
Björn með mælitæki og tóltakmörk lands réð kannaei fann merki og engin bólútilegumanna.Í öðrum árgangi' Íslendingsandmælir Hákon þessu:vart mat álit vitleysingsvirði einnar messu.
Heimildir og samhengi
+ Sigurður Breiðfjörð, f. 1798 - rímnaskáld (1835, 1837, 1838).
Aðalgeir Kristjánsson, ,,Nú heilsa þér á Hafnarslóð", úrdráttur af bls. 97: ...faðir hans (Sig. Breiðfj.) hét Eiríkur Sigurðsson og var hollvinur vínguðsins og einlægur unnandi íslenskra rímna. Sigurður nam beykisiðn í Kaupmannahöfn 1814 til 1818. Hann felldi saman stafi og gjarðaði ámur, svo að hinn dýri mjöður, sem átti eftir að verða honum svo kær, geymdist ómengaður. Það var enginn heimalningur sem lét í haf til Íslands með vorskipum 1818.
Á nokkrum blaðsíðum frá 219 segir Aðalgeir frá Hafnardvöl Sigurðar Breiðfjörð og leiðist engum lesturinn.
Um Sigurð sjá enn fremur Tímann og tárið eftir Óttar Guðmundsson, bls. 150 .
Sigurður Breiðfjörð er skáldhetja Ólafs Kárasonar Ljósvíkings í Heimsljósi Haldórs Laxness. T.d. niðurlag 17 kafla í Fegurð himinsins: ,,...andi hins fátæka alþýðuskálds, sem hinir lærðu höfðu að aungu og stórskáldin fyrirlitu, hefur búið með íslensku þjóðinni í þúsund ár...var kvikan í lífi þjóðarinnar í gegnum alla söguna ...Streingirnir fimmm á hörpu skáldsins, það voru streingir gleðinnar, sorgarinnar, ástarinnar, hetjuskaparins og dauðans ..."
Björn Gunnlaugsson (1788-1876), var stærðfræðingur, landmælingamaður og kennari við Latínuskólann á Bessastöðum, þar frá 1805, en skólinn fluttist til Reykjavíkur þetta ár.
Aðalgeir Kristjánsson, ,,Nú heilsa þér á Hafnarslóð", úrdráttur af bls. 99:
Björn Gunnlaugsson lauk stúdentsprófi 1808 og ,,hafði kennt sér allt sjálfur" (tilvitnun í Geir biskup Vídalín). Hann innritaðist í Háskólann 2. jan. 1818, en hafði áður hlotið verðlaunapening skólans úr gulli fyrir ritgerð í mælingarfræði. Þetta vakti óskipta athygli.
Bjarni Þorsteinsson, síðar amV, segir í bréfi: ,,Hingað er kominn íslenskur stúdent frá Norðurlandi, hvörs nafn ég nú ei man, vegna þess ég ætíð kalla hann hr. mathematicus. Hann er ...allra manna mestur í mælifræði og öðru þess háttar. Tekur hann sinus og cosinus af hvörju horni og hvörjum líkama (nema kvenfólksins)".
Björn lauk landmælingunum Íslands 1843 og hafði notið styrkja fyrir útlögðum kostnaði frá báðum deildum Hins ísl. bókmenntafélags. (AK, Hslóð bls. 300).
Kortin voru prentuð á árunum 1844 til 1849.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Þorsteinn frá Hamri, Ætternisstapi, bls. 163: ,,Björn Gunnlaugsson yfirkennari mun hafa orðið fyrstur til að ganga á hólm við útilegumannatrúna, enda gat hann trútt um talað, svo vel sem hann hafði kynnt sér öræfi landsins á ferðum sínum. Hann skrifaði í þessu skyni grein í blaðið Íslending og dró ekki af sér. Í tilefni af því spunnust nokkrar blaðadeilur, en trúin á hin huldu pláss átti sér ekki viðreisnar von eftir það".
Þó andmæltií 2. árg. Íslendings 12. apríl 1861 séra Hákon Espolín grein Björns Gunnlaugssonar, sem ritað hafði grein 14. mars 1861 í sama blað um ferðir sínar um hálendið 1831 til 1843 vegna kortagerðar. Björn hafði engra útilegumanna orðið var.
Sjá Vefurlandsbokasafn.is (opnast í nýjum flipa)
Prestaskólinn byrjar í Rvk. 1847, var til húsa í Hafnastræti 22, nú horfið, en síðar í Austurstræti 22;
~2000 menn létust af mislingum. (1882). Saga frá Skagfirðingum IV, 86: ,,Um vorið kom inn í Hafnarfjörð með skipi Knudtzonar mislingasótt. ...Kom enginn frí af sem ekki hafði áður fengið. Fengu skólasveinar á Bessastöðum sýki þessa og fluttist hún síðan bráðum með þeim um allt land”.