Piltungana Pjetur veit
Lag Kaffibolla berðu mér - Bj.Þ. 847
Piltungana Pjetur veití Prestaskóla aga.Jarðatalið Johnsen reit.Járnvarða Garð- á skaga.
Heimildir og samhengi
Dr. Pjetur Pjetursson (1808-1890) forstöðumaður nýstofnaðs Prestaskóla, biskup 1866-1889;
Prestaskólinn byrjar í Rvk. 1847, var til húsa í Hafnastræti 22, nú horfið, en síðar í Austurstræti 22;
Þangað leituðu gjarnan þeir stúdentar sem ekki höfðu fundið sig í Hafnarháskóla - stundum í bókstaflegri merkingu. Grátfyndna ævisögu eins þeirra fyrstu, Gísla Jóhannessonar, rekur Aðalgeir Kristjánsson frá bls. 337 í ,,Nú heilsar þér á Hafnarslóð".
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Jón Johnsen (1806-1881), sonur Jóns Jónssonar frá Ármóti (1842), fógeti í Rvk. og Álaborg, yfirréttardómari, faðir Jóns ,,ritara” (1876, 1878), gerði nýtt jarðamat fyrir Ísland.
Á fyrsta tug aldarinnar höfðu unnið að jarðamati sm. Gunnlaugur Briem, am. Ludvig Ericsen og vlm. Stefán Stephensen, sem rykféll í Kanselíinu eins og jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalín öld fyrr. HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
Árnesingur, Sögufélag Árnesinga, Páll Skúlason, bls. 102: ,,...Jarðatal á Íslandi, með brauðalýsingum, fólkstölu í hreppum og prestaköllum, ágripi úr búnaðartöflum 1835-1845 og skýrslu um sölu þjóðjarða".
Einar Laxness, Íslands saga III, 97: ,,Samkvæmt Jarðatali Jóns Johnsens, frá 1847, voru umboð metin á 8.787 hundruð, eða rúmlega 10% af verðgildi allra jarða í landinu". Þarna er átt við þær kirkju- , klaustra- og konungsjarðir sem enn voru óseldar, en sala hafði staðið frá 1784 vegna breyttrar pólitískrar stefnu - skyldi nú fjölgað sjálfseignarbændum. Umboðin höfðu náð því að vera sjötti hluti allra jarðeigna á landinu, skv. Einari Laxness.
Guðm. G. Hagalín, Kristrún í Hamravík, bls. 89: ,,Ólafur Betúelsson spyr Kristrúnu, móður sína: ,,Manstu það, móðir mín, hvað hún Hamravík er talin mörg hundruð að dýrleika?" ...,,Átta hundruð, skal ég segja þér, Ólafspiltur, þetta sagði mér Hallur bóndi í Hamravík, þinn sæli afi, og honum sagði Tímóteus bóndi í Straumavík, sem hafði það frá Einari mínum Pálssyni hreppstjóra, en hann mun hafa lesið það í þeirri margfróðu Jónsens jarðabók, sem ég kann að nefna".
Á Garðskaga járnvarða, þ.e., vísir að vita.
Vitar komu á Skagens Odde á Jótlandi og Lindesnesi í Noregi um 1400 þ.e., kyntir eldar um nætur. Íslandsskipin nutu þeirra og greiddu gjald fyrir í næstu höfn.
Á eynni Faros við Alexandríu í Egyptalandi var reistur viti um 270 f. Kr.
Tilvísanir:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)