Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1849
1849
1849

Grími margt þeir báru á brýn

Hljóðbrot0:00

Lag Seht, die gute Zeit ist nahe - EGB 18

GGrími margt þeir báru á brýnbáðu hann ei að vera:,,Ríða munu menn til þín-,,mene tekel úfarsín”-ráð væri resignera”.

Glúmur Gylfason · 1849

Heimildir og samhengi

,,Norðurreið Skagfirðinga” 23. maí til am. Gríms Jónssonar (1785 - 07.06. 1849), sem sat í Friðriksgáfu á Möðruvöllum í Högárdal, og kröfðust afsagnar hans ,,áður en verr færi” og hrópuðu: ,,Lifi þjóðfrelsið! Lifi félagsskapur og samtök! Drepist kúgunarvaldið!"
Þ.e., bein þýðing á slagorðum 12 þúsund danskra þjóðfrelsismanna í kröfugöngu eftir Strikinu 21. mars ári fyrr, sem leiddi til afnáms einveldisstjórnar sem verið hafði frá 1661.
,,Mene tekel ufarsin” ritaði hönd á vegg í veislu Belsassars konungs Nebúkadnesarssonar í Babylon (Dan. 5, 5 og 5, 24-30).
Útleggst: ,,Guð hefur talið ríkisár þín og leitt þau til enda. Þú ert veginn og léttvægur fundinn”.
Kóngur lifði ekki næsta dag en Grímur tvær vikur.
Mene tekel: orðtak um atvik sem ræður örlögum e-s.
Einnig að ,,ritað sé á vegginn", að e-ð (slæmt) sé fyrirsjáanlegt.
Resignera: fella merkið, þ.e., segja af sér.

Grímur var fylgjandi hærra jarðamati og hafði í fyrri amtmannstíð sinni farið eftir gömlu mati Skúla fógeta. Jarðaeigendur báru lága skatta og sögðu jafnan landið ekki bera þyngri álögur, en okruðu margir á leiguliðum sínum, staðfestir sr. Jón lærði Jónsson (1822) í sóknarlýsingu 1841, sbr. Eldur á Möðruv. 452, 464, 238, en þar segir að stórjarðeigandinn sr. Einar Thorlacius skrifi til Finns Magnússonar, að sumir sakni nú am. Gríms, það eina sem hafi skyggt á vinsældir hans hafi verið jarðamatsmálið, en fátækt landsins hafi ekki getað borið matið frá 1760 (Skúla).

Einar Laxness segir í Íslands sögu um norðurreiðina, að hún, ,,Dómkirkjuhneykslið" 1850 og pereatið 1850hafi vafalaust verið ástæða þess að stjórnin sendi herlið til landsins fyrir þjóðfundinn 1851.

Amtmannsbústaðurinn Friðriksgáfa er eitt af þeim húsum sem endurreist hafa verið í nýja Miðbænum á Selfossi.

Þessi atburður verður í beinu framhaldi af febrúarbyltingunni frönsku 22.-24. febrúar 1848, sem leiddi til þess að Kristján VIII. afsalaði sér einveldi eftir mótmælagöngur í Kaupmannahöfn og ný stjórnarskrá samþykkt 5. maí 1849, sú sem Jón Sigurðsson mótmælti á Þjóðfundinum 1851.
Kommúnistaávarp Marx og Engels kom út 24. febrúar 1848.

Myndir

Einnig frá árinu 1849

  • Ölfusbændur einum róm
  • Ei fraus Þórði í æðum blóð
← 1848Reyndist barnafræðslan flan1849 →Ölfusbændur einum róm