Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1616
1616
1616

Þar af verður Þórunn rík

Hljóðbrot0:00

Lag Fljúga hvítu fiðrildin

ÞÞar af verður Þórunn ríkþegar gengur bólaog enn skal sitja brúðarbríkþví brátt mun haninn góla.

Glúmur Gylfason · 1616

Heimildir og samhengi

Þórunn ríka Jónsdóttir varð einkaerfingi systra sinna tveggja sem dóu í bólunni 1616, en höfðu áður erft föður þeirra, sm. Jón á Galtalæk, Vigfússon, brennisteinsgreifa Þorsteinssonar í Ási Finnbogasonar lm. Maríulausa, Jónssonar Maríuskálds Pálssonar. Fyrri maður Þórunnar var Sigurður yngri Oddsson, biskups. Þau bjuggu í Hróarsholti í Flóa. Sigurður drukknaði í Hvítá 1617.

Seinni maður Þórunnar var Magnús Arasonar, Ögri, sem var látinn skjóta Baskana 15 ára gamall, 1615. Dóttir Þórunnar og Sigurðar var Hólmfríður mdm. í Vatnsfirði skáldprestsins þar, Jóns Arasonar frá Ögri. (1603, 1636,).
Frá hananum segir 1617. (Ísl. æviskrár).

Skarðsárannáll, I, 204, úrdr: Kom út hingað með þeirri bólu Ólafur Gottskálksson úr Dölum (Gsk. Jónsson Gíslasonar ,,gamla Adams"). ...fjöldi fólks dó strax á Rifi og Hjallasandi dreifðist svo út um landið. Ólafur hafði verið fluttur í land á Hjallasandi af ensku skipi og 70 dáið í Ingjaldshólssókn. Fáir fengu bóluna sem komnir voru yfir þrítugt.

Myndir

Einnig frá árinu 1616

  • Kolbeinsey bræðrum reyndist rík
  • Jörð um sig og sólu snýst
← 1616Kolbeinsey bræðrum reyndist rík1616 →Jörð um sig og sólu snýst