Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1617
1617
1617

Hestfjall besti berjamór

Hljóðbrot0:00

Lag Sigga litla, systir mín

Lag Rósin

HHestfjall besti berjamórbyrðar má þar takaer Þórunn ríka þaðan fórþá ei fann sinn maka.

Þar sem heyrðist haninn galahéldu menn sig vita aðlátinn myndi manninn alaog merktu við þann fundarstað.

Margt um þurftu menn að talameðan slæddu af sér grunupp tókst seggjum Sigurð halasögufrægur haninn mun.

Glúmur Gylfason · 1617

Heimildir og samhengi

Fitjaannáll II, 100: ,,Drukknun Sigurðar yngra Oddssonar biskups Einarssonar, í Hvítá hjá Oddgeirshólum, og hans manns, sem Bergur hét.
Sigurður fannst með því móti, að á skipi var eptir leitað og hani með hafður. Hittist lík Sigurðar þar beint undir er haninn gól yfir, en Bergur fannst ekki”.

Erindi S.O. yfir ána var að sækja konu sína, Þórunni ríku Jónsdóttur Vigfússonar brennisteinsfursta (1603) sem var á berjamó í Hestfjalli, en þau bjuggu í Hróarsholti. Hún gekk þá með Hólmfríði, sem varð móðir Ragnheiðar á 5000 kr. seðlinum, en langamma Thorvaldsens bílætahöggvara. (1715, 1839).
Þórunn fékk viðurnefnið ríka eftir að hún erfði systur sínar, Helgu og Hólmfríði, sem dóu í bólunni 1616. Allar þrjár voru gefnar sonum Odds biskups Einarssonar.

Síðari maður Þórunnar varð Magnús Baskaskytta 1615, Arason (Ögri) og gekk Magnúsarnafnið áfram til sýslu-, lög-, amtmanna og landsyfirréttardómara til 19. aldar og lengur.
Magnúsarnafnið kemur frá sm. Vaðlaþings, Magnúsi (1440-1518) Þorkelssyni officialis og galdramanns d. 1493. Magnús var föðurafi Magnúsar prúða Jónssonar og þeirra bræðra frá Svalbarði, Ef., Jóns, Páls og Sigurðar.
Konur voru líka í ætt þessari, t.d. var Ragnheiður á rauðum sokkum Pétursdóttir móðir fyrrnefndra Svalbarðsbræðra. Föðurafi hennar var Loftur Ormsson hstj. Loftsson ríka, hstj. Guttormssonar. Nafn til hennar sækja t.d. R. Pálsdóttir, Staðarhóls, og R. Torfadóttir, (Sjá 1579, 1583, 1600, 1641, 1642, 1661, 1666, 1670, 1675).
Til Þorbjargar Þorkelsdóttur Guðbjartssonar, fyrrnefnds, sækja margar konur þessarar ættar nafn. T.d. Þ. Vigfúsdóttir kona Hákonar Árnasonar, móðir Gísla í Bræðratungu, d. 1631. (Ísl. æviskrár).

Myndir

Einnig frá árinu 1617

  • ,,Enginn skyldi signa sig”
← 1616Jörð um sig og sólu snýst1617 →,,Enginn skyldi signa sig”