Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1642
1642
1642

Fjölmenna til messu má

Hljóðbrot0:00

Lag Þótt ég sökkvi í saltan mar - Bj.Þ. 881

FFjölmenna til messu mámátið stöndumst ekkií Víkurkirkju kátt er fákonur átta bekki.

Er Rauðasandi og sýslu frásinni Eggert flúðirendur fengu reist við þáRagnheiður og Prúði.

Glúmur Gylfason · 1642

Heimildir og samhengi

Í Víkurkirkju (Reykjavík, þar sem nú er stytta Skúla fógeta) koma 8 bekkir kvennamegin og 1 karlamegin. Kirkjur voru án bekkja áður fyrr.
Skjalfundur.reykjavik.is (opnast í nýjum flipa)

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

Skarðsárannáll I 267: ,,Deyði Ragnheiður Eggertsdóttir vestur í Patrixfirði í Sauðlauksdal þann 6. Augusti; hafði þrjá um nírætt”.Magnús prúði Jónsson (f. á bilinu 1521 til 1525, d.1591) átti að fyrri konu Elínu Jónsdóttur frá Dunhaga, d. 1564, þau barnlaus. Kvæntist 1565 Ragnheiði Eggertsdóttur lögmanns, Hannessonar, áttu 11 börn. Ragnheiður lést 1542 og var því ekkja í hálfa öld.

Magnúsar er getið hér 1567 fyrir marköngladóm, 1587og1569og 1563fyrir átök við Árna Gíslason og 1580 fyrir vopnadóm (1581?), en þykir skipa sér á skáldabekk með Pontusrímum.
1579 er þeirra hjóna, Ragnheiðar og Magnúsar prúða, getið í sambandi við ,,ránið á Bæ" á Rauðasandi og vísar niðurlagið til þess og er nánari skýringar að leita við 1579.
Vefuris.wikisource.org (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1642

  • Oddur samdi sálma og lög
← 1642Oddur samdi sálma og lög1643 →Fúsi Gísla ætt nam auka