Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1643
1643
1643

Alltaf vill hann upp á dekk

Hljóðbrot0:00

Lag Ég má bera hallan haus - Bj.Þ. 847

AAlltaf vill hann upp á dekkí atgangi og hríðum,Kristján fjórði trekk í trekk,tapar sínum stríðum.

Glúmur Gylfason · 1643

Heimildir og samhengi

Sænski herinn, er barðist í 30 ára stríðinu á þýskri grund á móti keisaranum þar, sneri 12. des. 1643 norður til Holstein og Jótlands undir forystu L. Torstenson. Þar með byrjar ,,Torstensonstríðið" sem lauk með tapi Dana 1645.
Þó fór Kristján IV. með sigur í sjóorrustu á Kílarfirði 1. júlí 1644, sem kostaði kóng hægra augað. Um þann bardaga fjallar konungssöngurinn ,,Kong Christian stod ved höjen mast”.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Sænsku herskipin 42 urðu innlyksa í mánuð á Kílarfirði, en sluppu þá út og lét kóngur taka af lífi yfirmann flotans sem átti að halda Svíunum í herkvínni.
Kóngur sem tapar stríði þarf að finna blóraböggul, á annars á hættu að verða settur af, sbr, Eirík af Pommern 1336/39. Þó mátu kóngar það stundum svo að betra væri að sýna vald sitt og mildi með því að náða skúrkinn á síðasta augnabliki - sjá 1676.

Stríð Kristjáns IV.:
Sigraði í Kalmarstríðinu 1611-13.
Tapaði sínum þætti í 30 ára stríðinu, sem hann blandaði sér í 1625-1629.
Alsíringar vissu að skip hans voru stödd í Eystrasalti og hefðu annað að gera en verja Ísland og sættu lagi, þ.e.: Tyrkjaránið 1627.
Tapaði ,,Torstensontríðinu” 1643-45.

Vefurdanmarkskonger.dk (opnast í nýjum flipa)

Alfræðida.wikipedia.org (opnast í nýjum flipa)

Alfræðida.wikipedia.org (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1643

  • Fúsi Gísla ætt nam auka
← 1643Fúsi Gísla ætt nam auka1644 →Til þess sig knúinn Torfi fann