Ekkjan Katrín á nú bágt
Lag Dvel ég í Draumahöll
Ekkjan Katrín á nú bágten aldrei sagt að volihafði einn í fertugt fáttFúsi á Stórólfshvoli.Vigfús var haldinn með hyggnustu mönnum /höfðingi og tvívegis sigldurrektor og fróður í fræðum sönnumfjáður en aumum mildur.
Heimildir og samhengi
Lést í apríl 39 ára Vigfús Gíslason, sm. Stórólfshvoli, áður rektor Hólaskóla um tvö ár og því næst önnur tvö ár í Skálholti, en 1632 fékk hann Árnessýslu og Vestmannaeyjar að sýslu, sjá 1611.
Vigfús þótti djarfur er hann 1634 ásamt Hákoni bróður sínum neitaði að sverja höfuðsmanni hollustueið (Saga Íslands VII, 123).
Ekkjan, Katrín Erlendsdóttir, nefnd ríka, - skörungur mikill.
Páll E. Ól., Saga Íslendinga V, 221: ,,orðlögð búkona. Af þeim er komið margt göfugra manna (einkum frá Jóni biskupi, syni þeirra) ...Vigfús Gíslason var talinn skarpvitur, ..vel lærður og skjótur í svörum, gagnorður og máldjarfur. Hafi hann haft flestar þær gáfur til að bera, sem höfðingja megi best prýða".
Katrín kom upp 5 börnum þrátt fyrir að missa hús og innbú á Stórólfshvoli 20. október ári síðar, sjá 1648.
Erlendur faðir Katrínar var Ásmundsson Þorleifssonar lm. Pálssonar. Móðir Þorleifs var Sólveig Björnsdóttir ríka á Skarði, Skarðsströnd. Langafi Katrínar í móðurætt var Gísli Skálholtsbiskup Jónsson.
Legsteinninn á myndinni er í Stórólfshvolskirkjugarði. Á honum sést ártalið 1666.