Árni dó í Leirárlaug
Lag Einu sinni átti ég hest - Bj.Þ. 830
Árni dó í Leirárlauglögmannstitli játtiHrifla í h'onum hverja taugheimtaði og átti.
Árna lögmanns brostinn bogihvern Bjelke fyrrum grætti (?)þá kóngurinn í Kópavogikjörin þegna bætti.
Heimildir og samhengi
Fitjaannáll II, 201: ,,Þann 10. Martii... burtkallaði guð þann göfuga, guðhrædda og dyggðum prýdda herra Árna Oddsson lögmann á 73. ári hans aldurs.
Fannst einmana, nýlega örendur í Leirárlaug, hverja hann var vanur að brúka.
Hann hélt söng kveld og morgna í kirkjunni á Leirá; var áður hringt svo sem plagsiður er á biskupsstólunum hér í landi”.
Árni var lögmaður frá 1631 til 1662.
Í þjóðsögu og Fitjaannál, rituðum af barnabarni Odds biskups, og sögubók sem tók þær heimildir gildar, er Árni hinn góði andspænis vondum Dana 1618. Þar eru Páll Eggert Ólason og Benedikt Gíslason frá Hofteigi á öndverðum meiði eftir að hafa rannsakað heimildir - sjá1618.
Líkt farið um vafasama heimild sem lýtur að Kópavogsfundinum 1662 og tíunduð var í Íslandssögu Jónasar Jónssonar 1916, sem gerði Árna að grátandi þjóðernishetju við stjórnarfarsbreytingu sem sagnfræðingar eru nú sammála um að horfði til framfara.
Sjá 1662, 1939.
Guðmundur Hálfdánarson í Heimtur 2009, bls. 155: ,,...þjóðernissinnuð viðhorf eins og boðuð voru í Íslandssögu Jónasar frá Hriflu hafi blásið Íslendingum kapp í kinn á mikilvægum tímamótum í sögu landsins og hún hafi á þann hátt ýtt undir framtak þeirra og dug.
Á hinn bóginn hefur verið bent á, að löngu tímabært væri að endurmeta þessa söguskoðun”.
Í Íslandssögu Jónasar er börnum innrætt þjóðernistilfinning þegar sagan stendur með flekklausum forfeðrum þeirra, sem áttu í höggi við vonda útlendinga, Dani, sem þjóðernisofstækismenn - að þeirrar tíðar hætti - spyrtu í koningaham saman við Tyrki, sbr. 1914.
Þannig eignuðumst Árnagarð og Vídalínskirkju, en ,,Íslandsvinarins" L. Gottrup að engu getið, sbr. 1618, 1662, 1701 og næstu ár þar á eftir.