Ómalað korn og kvarnarsteinn
Lag Dvel ég í draumahöll
Ómalað korn og kvarnarsteinnkaupsetningin nýjaí búðum finnist fleiri en einnþá færri kaupmenn rýja.Upp er tekin alin nýei skal brúka reislutólf menn finnist flestir íef fátækir halda veislu.
Heimildir og samhengi
LÍFTAUG LANDSINS, bls. 216: ,,Ný verðlagsákvæði voru sett árið 1776. Samkvæmt þeim skyldi verð reiknað í kúrantríkisdölum í stað gildra fiska. Við samningu þessara ákvæða var tillit tekið til verðs afurðanna á mörkuðum erlendis. En eigi að síður breyttist hlutfallsverðlag mikilvægra vörutegunda furðu lítið".
Djáknaannáll VII, 199: ,,Nú kom nýr höndlunartaxti ...sem gildi eftir nýár, var með honum aftekinn sá gamli máti að reikna upp á lestir, vættir, fjórðunga og fiska, heldur átti allt að reiknast upp á ríkisdali og skildinga. Nú kom þar inn eftirliggjari á Hafnarfjörð sem þar átti að hafa vetursetu ...vildi kammerið hafa alla kaupmenn eftirliggjandi".
Áður viðgekkst að hleypa aðeins einum inn í búð í einu.
Íslendingar höfðu á miðöldum ræktað og malað korn en týnt hvoru tveggja niður þegar veðurfar kólnaði.
Ómalað korn geymist betur svo nú var tekið að flytja korn þannig inn og kenna Íslendingum að mala korn og búa til kvarnarsteina..
Ýmsar tillögur Landsnefndarinnar fyrri koma nú sem kngl. tilskipun, þ.á m. það sem hér kom fram við 1770 og 1771 um fjölda veislugesta, en ekki fengu hreppstjórar þó aukin völd hvað þá frakka. Einnig ,,Landbrugsforordning" og tilskipun um vegagerð, sem Bjarni Thorarensen byrjaði loks á 1831, sjá þar.
(Heimild m.a: Harald Gustafsson: Mellan kung och almoge, bls. 160).
Alin 1776: 62,77 cm. en hafði verið 57 cm. Vog kemur í reislu stað.
(1 kýr = 6 ær = 120 álnir = 240 fiskar).
Heimild: Bændablaðið 11. ág. 2016 í viðtali við fornleifafræðing, Sólveigu G. Beck, um kvarnarsteina;
Íslands Árbók, Annálar V.