Aðgát haf við unga sál
Lag Hani, krummi, hundur, svín
Lag Eins í vöku - Bj.Þ. 829 (Ég að öllum háska hlæ)
Lag Hani, krummi, hundur, svín
Aðgát haf við unga sálallir skyldu munaOddi þótti æ við Páleftir hýðinguna.
Lítið hefur Oddur elstinnvortis í sinnihýðing sú er tvítug telsttollir vel í minni.
60 daga sigla másvo skal haga máliað lögmannstíð sé löngu þálokið fyrir Páli.
Heimildir og samhengi
Við 1695er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m.
Lm. Páll Vídalín, þá rektor Skálholtsskóla, hýddi hinn stórættaða Odd Sigurðsson 1695/6, sjá það ár. Faðir Odds var sonur Sigurðar eldra Oddssonar, sem var albróðir og alnafni þess sem drukknaði í Hvítá 1617. (Ísl. æviskrár).
Til að fylgja eftir brottvikningu Páls Vídalín úr lögmannsembætti ,,lét Oddur í haf frá Íslandi 18. ágúst, en hrepptu storma mikla og illviðri á leiðinni og urðu vatnslausir. Loks komu þeir 17. október til Glückstad”. (Jón Aðils: O. Sig., 81).
Til Kaupmannahafnar kom hann í nóvember en samt á undan Páli, sem fór um Noreg.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Síðar mátti Oddur eitt sinn sigla í 70 daga milli Íslands og Noregs.
Til samanburðar: Það tók stór þrímöstruð seglskip á milli 40 og 80 daga að sigla með útflytjendur frá Hamborg til New York frá miðri 19. öld.
Um 1890 komu gufuskip sem sigldu þá vegalengd á 10 til 14 dögum. (Der Spiegel, Geschichte 1/2022, bls.71).
1478 barst bréf á 9 sólarhringum frá Björgvin í Noregi til Skálholts.
En hraðametið á Þórarinn Nefjólfsson: 4 sólarhringa frá Björgvin til Eyrarbakka og allt til Þingvalla árið 1024 þeirra erinda Ólafs Haraldssonar Noregskonungs að fala Grímsey af Íslendingum.
Haustið 1800 var Björn Ólafsson Ólsen (1767 - 1850), síðar sm. og klh. Þingeyrum, farþegi með seglskipinu Seres (Ceres?) frá Akureyri til Kaupmannahafnar og tók siglingin 6 sólarhringa í ofviðri sem grandaði 200 skipum á Norðursjó og Kattegat að sögn Gísla Konráðssonar, sem kann og að segja frá að Höfðaskip í umsjá Kristjáns Gynther Schram, kaupmanns þar, strandaði 1802 í Berufirði í Múlaþingi eftir 17 vikna hrakning á sjó.
(Saga Skagstrendinga og Skagamanna, bls. 64 og 68).
,,Haustskipið" Anna, lítið seglskip, sigldi með vörur frá Kaupmannahöfn til Papóssverslunar 1884, en komst þangað á annan páskadag, 7. apríl 1885, eftir 215 daga og hafði þá tvívegis hrakist til Noregs.
Eftir skipsskjölum vantaði einn kassa með meðölum og fleiru. Hraðboði á úrvalshestum náði með kæru til sýslumanns á Kirkjubæjarklaustri á 12 dögum fram og til baka, en þá var kassinn fundinn. (Torfi Þorsteinsson, Töfrar liðins tíma, bls. 53).