Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1717
1717
1717

Guðríður Ormsdóttir ógift dó

Hljóðbrot0:00

GGuðríður Ormsdóttir ógift dóengan lét sig dáraaf jarðvist hafði hlotið nóghundrað og fjögu'rra ára.

Mörgum þætti minna nógmargt á skilið hrósum 200 erfingja átti er dóOrmur Fúsa í Kjós.

Glúmur Gylfason · 1717

Heimildir og samhengi

Íslendingabók segir Guðríði húsfreyju búandi í Eyjum í Kjós 1681. „Dó 105 ára með allri sjón og heyrn“, segir Espólín.

Páll Eggert Ólason segir hana í Íslenskum æviskrám látna 1718, 104urra ára.

Skv. Íslendingabók deyr hún 98 ára 1713. Þó að hún væri barnlaus átti faðir hennar, Ormur Vigfússon sýslumaður, 196 afkomendur þegar hann dó á hundraðasta aldursári 1675. Einn þeirra var dóttursonurinn Sigurður Björnsson, lögmaður 1677-1705. Sjá 1707.
Til málamiðlunar er Guðríðar minnst hér, 1717.

Faðir Guðríðar, Ormur Vigfússon, átti að móðurafa Þórð Guðmundsson lögmann (1604) og bjó lengst í Eyjum í Kjós. sýslumaður þar og við Eyjar kenndur.
Með konu sinni, Guðríði Árnadóttur, prests í Holti, Efj., Gíslasonar, átti Ormur 14 börn.

Myndir

Einnig frá árinu 1717

  • Kaupmaður þóttist klækjum beittur:
← 1717Kaupmaður þóttist klækjum beittur:1718 →Forlistið stóra þeim varð þarft