Fáum býður faktor dús
Lag Litlu andarungarnir
Lag Jólasveinar 1 og 8
Fáum býður faktor dúsog færri í sín véEyrarbakkabúðarhúsbyggði af norsku tré.
Er helst á Eyrarbakka að biðja umbrennivín og annað votten timburlaust á lestum miðjumléreft skortir, striga og pott.
Heimildir og samhengi
Einokunarverslun Jens Lassen á Eyrarbakka reisir tvær verslunar- og vöruskemmur, sem Kaupfélag Árnesinga eignaðist síðar og reif 1950. Innflutningshöft giltu þá og timbur illfáanlegt. Kaupfélagsstjórinn, Egill Thorarensen, lét þá rífa vöruhúsin og byggði af þeim fimm bursta geymsluhús í Þorlákshöfn, sem brann haustið 1987.
Mynd af húsinu í ljósum logum er á bls. 260 í Sögu Þorlákshafnar 1930-1990.
Oddur Oddsson segist í bók sinni, Sagnir og þjóðhættir, bls. 93, hafa barn komið í Eyrarbakkaverslun með föður sínum og spurt: ,,Er þetta himnaríki?"
Vigfús Guðmundsson: Saga Eyrarbakka, bls. 581 - hluti lýsingar sm. Rang., Þorsteins Magnússonar (1738) rituð 3. maí 1756 - en á við árið 1755: ,,Höndlunin á Eyrarbakka er hin laklegasta, vöruskortur á háu stigi. Fyrr en á miðjum lestum var verslunin timburlaus og ekki til pottur, hirzla eða matarílát, ekki léreft né strigi".
Á bls. 578 segir Vigfús ,,...jafnan var yfirdrifið á boðstólum hjá kaupmönnum af brennivíni og tóbaki þó að nauðsynjar vantaði".
Á bls. 581: ,,...mikil breyting til bóta kom með konungsversluninni 1774-1787".
100 ára minning fyrrn. Vigfúsar, bls. 12 í Mbl. 22.10. 1968, Kjartan Sveinsson, skjalavörður á Landsbókasafni, ritar: ,,Hann (VG) átti heiðurinn af því að bjarga frá glötun hinu mikla safni verslunarbóka frá Eyrarbakka. Hann var þar á ferð þegar verið var að rífa hin fornu verslunarhús. Þarna lá allt safnið og beið þess eins að verða flutt niður fyrir sjávarkambinn. Vigfús brá skjótt við, leigði sér vörubíl, hlóð hann höfuðbókum og ók með allt að dyrum Þjóðskjalasafnsins í Reykjavík. Þessar bækur geyma atvinnusögu alls Suðurlands í meira en eina öld og skrá um efnahag nálega hvers einasta heimilisföður sem þar hefir lifað á þessu tímabili".
Í fyrrnefndri bók Odds Odssonar er nákvæm lýsing á verslunarháttum á Eyrarbakka 1880 til 1890 og lestarferðum til og frá sveitunum í austri.