Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1565
1565
1565

Nú fær lesið nafna sinn

Hljóðbrot0:00

Lag Vorið góða, grænt og hlýtt

NNú fær lesið nafna sinná nefi glerið siturþá séra Pétur pistilinnpostullega flytur.

Glúmur Gylfason · 1565

Heimildir og samhengi

Gerist prestur á gamals aldri í Hjarðarholti í Dölum fv. sm. Pétur Einarsson (~1505-~1594 (?) Ísl. æviskrár), bróðir Marteins biskups, og einn helsti foringi siðbreytingarmanna á synodu lútherskra í Skálholti eftir lát Gissurar biskups Einarssonar 1548. Talinn hafa ráðið því hver var valinn til biskups þá, nefnilega fyrrnefndur bróðir hans enda góður kostur. Auknefndur Gleraugna-Pétur og notaði sjóngler fyrstur Íslendinga svo vitað sé, og hefur haft þau með sér frá Englandi, en þar höfðu þeir bræður numið og dvalist að Guðlaugar systur sinnar sem þar var kaupmannsfrú.
Meira um Pétur Einarsson hjá Steinunni Kristjánsdóttur, Leitin að klaustrunum, bls. 340.

Símon Pétur postuli Jóhannesson á tvö bréf - pistla - í Nýja-Testamentinu.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1565

  • ,,Ólafur varð mér ekki að manni
← 1564Ofar tekur en í jarka1565 →,,Ólafur varð mér ekki að manni