Höður blindi, heiðni í
Lag Gegnum hættur, gegnum neyð - SB 292
Höður blindi, heiðni íhenti mistilteininum.Æðsti klerkur kristni íkastaði fyrsta steininum.
Vindheima-Jón og þeir bræður báðirbera um vitni, aðGuðbrandur fleira drýgði en dáðirog Drekkingarhylur veit það.
Heimildir og samhengi
Þegar hreinsunareldsins nýtur ekki lengur við er farið að huga að veraldlegri lagasetningu fyrir siðferðisbrot.
Í Kristnirétti hinim nýja, sem Staða-Árni biskup Þorláksson setti 1275 (Hólastifti 1354), var formúlan sótt til Gulaþingslaga frá miðri 12. öld. Taldar voru upp 17 konur sem karl mætti ekki hafa samræði við og skyldleiki þar í 4. lið. Fyrir fjórmenningsbrot skyldi gjalda 12 aura sekt, þ.e. 5% af kýrverði. Þremenningur galt þrjár merkur, ~750g (silfurs?), sjá 1622, systkynabörn hálfa fimmtu mörk. Ódáðaverk var karli að leggjast með skyldari konu en þetta og giltu þá skriftir, friðleysi og eignaupptaka, þar sem biskup og kóngur fengu sinn helming hvor. Siðferðisbrot heyrðu þá undir dómstól kirkjunnar. Dauðarefsing þekktist ekki.
Heimild: Dr. Már Jónsson: ,,Sautján konur", í Yfir Íslandsála, bls. 147.
Herdís Hrönn Níelsdóttir, BA ritgerð í lögfræði við HÍ 2015:
SkjalSkemman (opnast í nýjum flipa)
,,Lögmenn nokkrir leituðu til konungs því að þeim fannst strangari refsingar vanta í kynferðismálum hér á landi, voru það þeir Eggert Hannesson og Páll Vigfússon. Má segja að þeir hafi verið frumkvöðlar sem hófu ferlið að þessari nýju löggjöf".
Már Jónsson minnir á í Blóðskömm á Íslandi, að sagnfræðingar hafi löngum haldið því fram að Stóradómi hafi verið þröngvað upp á Íslendinga. Sú hafi þó hvergi verið raunin. Íslenskir embættismenn hafi falast eftir þessu (1559) eða að minnsta kosti látið sér vel líka. Hins vegar virðist svo sem þá hafi óað við hörkunni þegar til kastanna kom enda mun mannsaldur hafa liðið þar til fyrsti dauðadómurinn féll og þá eftir að Guðbrandur Hólabiskup hafði klagað lögmenn (Vindheima-Jón, sjá 1606) fyrir kóngi og fengið dóminn ítrekaðan 1585.
Enn telur Már í Blóðskömm á Íslandi, 121: ,,Kirkjunnar menn jafnt sem veraldlegir ráðamenn kepptu um hylli konungs í því skyni að ráða sem mestu í landinu. Ekki var hikað við að rægja andstæðinga og freista þess að koma fram breytingum þeim í óhag”.
Svo seint sem 1986 kemur bók út hjá Hildi: ,,Syndir feðranna I. Þar sem stendur á bls. 32:
,,Voru Íslendingar tregir mjög til að samþykkja þennan (Stóra)dóm en þeim var engu að síður þröngvað til þess."
Herdís Hrönn Níelsdóttir í BA ritgerð í lögfræði við HÍ:
,,Guðbrandi Þorlákssyni, (síðar) biskupi, blöskraði hirðuleysi sýslumanna þegar kom að refsingum þeirra sem gerðust brotlegir gegn ákvæðum Stóradóms um blóðskömm. Fannst honum að menn væru of linir í því að refsa fólki fyrir þessar óguðlegu syndir. ...Líflát blóðskammara var Guðbrandi réttlætismál og hann barðist gegn viðleitni veraldlegra ráðamanna til að gefa þeim líf. ...Árið 1585 varð Guðbrandi, (þá orðinn Hólabiskup), það ágengt að konungur féllst á rök hans og tók fyrir alla eftirlátssemi. Stóridómur var ítrekaður og skipað var fyrir um aftökur dauðadæmdra án undantekninga“.
Um það, hvað af gat hlotist ef ekki var refsað fyrir lögbrot: sjá 1632.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Páll Skúlason, Pælingar, bls. 250: ,,Að snúa boðorðum Krists upp í einberar siðareglur er ein háskalegasta villa sem boðendur kristinnar trúar geta gert sig seka um. Þá glatast hið trúarlega inntak þeirra, og í stað hugmyndarinnar um Jesú sem félaga og frelsara kemur hugmyndin um Guð sem almáttugan siðgæðisvörð, sem vendinum veifar af minnsta tilefni".
Velta má fyrir sér, hvort 50 Íslendingar hafi látið lífið vegna hagsmuna- og valdabaráttu Guðbrands við lm. Vindheima-Jón og þá bræður, Svalberðinga. (1606, 1576).
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)
Vindheima-Jón Jónsson (1536-1606) lögmaður frá 1573 til dd., er kenndur við Vindheima á Þelamörk í Eyjafirði, en ættaður frá Svalbarði í Eyjafirði. Um óvild milli Guðbrands og þeirra bræðra má lesa 1620, 1581, Jóns, 1594, Magnúsar prúða, 1578, Sigurðar, 1558 Staðarhóls-Páls.