Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1585
1585
1585

Höður blindi, heiðni í

Hljóðbrot0:00

Lag Gegnum hættur, gegnum neyð - SB 292

HHöður blindi, heiðni íhenti mistilteininum.Æðsti klerkur kristni íkastar fyrsta steininum.

Glúmur Gylfason · 1585

Heimildir og samhengi

Mannsaldur kann hafa liðið þar til fyrsti dauðadómurinn féll skv. Stóradómi og þá eftir að Guðbrandur Hólabiskup hafði klagað lögmenn fyrir kóngi og fengið dóminn ítrekaðan 1585.

Um þetta segir Herdís Hrönn Níelsdóttir í BA ritgerð:
,,Guðbrandi Þorlákssyni biskup blöskraði hirðuleysi sýslumanna þegar kom að refsingum þeirra sem gerðust brotlegir gegn ákvæðum Stóradóms um blóðskömm. Fannst honum að menn væru of linir í því að refsa fólki fyrir þessar óguðlegu syndir ...Líflát blóðskammara var Guðbrandi réttlætismál og hann barðist gegn viðleitni veraldlegra ráðamanna til að gefa þeim líf.“

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Hvort skyldi vandlæti biskups hafi ráðið ferð eða það að gera óvin sinn, lm. Jón Jónsson, tortryggilegan í augum kóngs?
Ísl. æviskrár V, 160: ,,Þorlákur Ívarsson d. 1590 (þeir Guðbrandur systkinabörn) missti prestsskap 1574 vegna óskírlífisbrots, en með tilstyrk Guðbrands biskups frænda síns fékk hann aftur sama prestakall og hélt til æviloka".

SkjalSkemman (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1585

  • Við bókband jafnframt Júrín má
← 1585Við bókband jafnframt Júrín má1586 →Í Vestmannaeyjum skal einn skans