Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1590
1590
1590

Veiting sú var ágæt, Ein-

Hljóðbrot0:00

Lag Við stallinn Kristí

VVeiting sú var ágæt, Ein-ar þá Heydal fékk sem beinOddur lagði ekki steinættar sinnar í götuer rektorarnir raða sér á jötu.

Glúmur Gylfason · 1590

Heimildir og samhengi

Ekki var Oddur fyrr kominn til landsins vígður Skálholtsbiskup en hann veitti föður sínum, Einari Sigurðssyni, Heydali eystra um haust, en hafði þó fengið honum Hvamm í Norðurárdal um vorið sama árið og skipað hann prófast þar þá þegar.
Uppteknum hætti hélt hann áfram með því að raða ættingjum sínum á bestu brauð stiftisins en sá til þess að á þeirra framfæri lentru ekki fátækir uppgjafaprestar sem þó skyldan bauð. Nú skyldu rýrari brauð sjá fyrir þeim - sjá 1611.

Safn til sögu Íslands, I, 18: ,,Oddur biskup var kunnur að því, að hann dró fram ættingja sína meir en flestir aðrir, og 1591 hafði hann útvegað bróður sínum, séra Sigurði, Breiðabólstað í Fljótshlíð, og fengið einhvern veginn séra Pál Erasmusson til að sleppa þeim stað." Séra Páll hafði þó konungsveitingu fyrir þessu, þá besta brauði landsins. Fékk Erasmus svo Hrepphóla eða þjónaði þar, eftir að Oddur kallaði séra Jón Egisson þaðan eftir slysið 1605.

Eftir Jóni Halldórssyni í Hítardal (1665-1736) er haft að erfitt hafi verið foreldrum að koma drengjum í Skálholtsskóla nema með því að gefa með jörð, jarðarpart eða veð í jörð.
Oddur reyndi á Alþingi að svara gagnrýni á embættisfærslu sína 1611og aftur 1618, sem frægt varð, en illmögulegt var almúga að ná rétti sínum gegn höfðingjum á þessum árum. (1589, 1698, 1699).
Fitjaannáll sonarsonar Odds segir þessar sögur frá sjónarmiði ættarinnar og rötuðu þannig inn í sögubækur.
Við 1611 og 1618 er fjallað nánar um einkavinavæðingu herra Odds í embættaveitingum.
Lokahending vísunnar gefur tilefni til að upplýsa að af 7 Skálholtsrektorum í biskupstíð Odds voru 6 honum skyldir í 1. eða 2. lið. Sá eini honum óskyldur var lagður í einelti og flutti sig þá til Hólaskóla.
Heimildir: Páll Eggert Ólason, Saga Íslendinga V, 71, 220-221; Benedikt Gíslason frá Hofteigi, Fólk og saga, bls. 40-50.

Myndi.pinimg.com (opnast í nýjum flipa)

Á bls. 15 í ævisögu Helgu Sörensdóttur nefnir Jón Sigurðsson frá Ystafelli þá sögn, að allir Íslendingar geti rakið ætt sína til sr. Einars Sigurðssonar.
Svari nú hver fyrri sig, hvort nepotisminn sem fram kemur í vísunni styrki þá sögn.

VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

Caligula, keisari a.d. 37 til 21. jan. 41, myrtur, útnefndi hest sinn consul, þ.e., ráðgjafa, í senatinu. (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1589Odds eru, biskups, ær og kýr1591 →Drepsótt geisar dýrum hjá