Í orðsins listum erum klók
Lag Faðir á himna hæð
Einu sinni átti ég hest - Bj.Þ. 830
Í orðsins listum erum klókengum að baki stöndumnótnasetjum Sálmabóksem öðrum löndum.
,,Allt hafði annan rómáður í páfadóm"nú latínuljóð frá Rómlögð út með íslenskum hljóm.
Heimildir og samhengi
Guðbrandur Þorláksson Hólabiskup lætur prenta sálmabók, ,,Hólabókina”, með nótum.
Skv. ævisögu Sæmundar Sæmundssonar, Virkum dögum I, bls. 53 voru ,,gömlu lögin”, þau sem skráð eru í Sálmabókinni 1589 og Grallaranum 1594, sungin á sunnudögum á Látrum á Látraströnd a.m.k. fram undir aldamótin 1900 og sambærilegar heimildir finnast frá öðrum landsvæðum..
Eftir 408 ár kom út sálmabók sambærileg hvað nótur snertir.
Siðbótarlögin evrópsku voru e.t.v. aldrei sungin samkvæmt nótnasetningunni 1589 en urðu að íslenskri laggerð eða íslenskum þjóðlögum.
Á þeim var svo tekinn annar snúningur á 19. öld og breytt í dúr / moll, sem var áður óþekkt fyrirbrigði hér.
Í Hólabókinni eru líka íslenskar þýðingar á latneskum tíðagerðahymnum.
Marteinn Lúther (1483 - 1546), siðbótarfrömuður, þýddi biblíuna á þýsku og orti og lét aðra yrkja messuliði og rímaða sálma á móðurmáli í þeim tilgangi að lítt læs almenningur skildi og tæki þátt í helgihaldinu, sjá 1563 og 1555 og 1594.
Á kaþólskum tíma var messan sungin á latínu og sálmar í tíðasöng voru latneskir hymnar.
Á íslensku ortu þó trúarleg ljóð Kolbeinn Tumason (~1171 - 9. sept. 1208), goðorðsmaður, Eystein munkur Ásgrímsson (~1315 - 1361), og Jón Arason ( ~1484 - 7. 11. 1550), biskup.
Vefurmusik.is (opnast í nýjum flipa)