Jón ei geti galdrað nú
Lag Eins í vöku´ og eins í blund - Bj.Þ. 829
Jón ei geti galdrað núGuð um megum biðjaþví upp er komin önnur brúef ekki sú þriðja
Heimildir og samhengi
Sjá 1667 og Brúarbyl 1670.
Að fornu mun hafa verið steinbogi yfir Jökulsá á Dal við bæinn Brú.
1564 er smíðuð brú yfir ána við Fossvelli og haldið að þýskir kaupmenn hafi a.m.k. lagt til efni.
Brú fellur þar 1620 og ný smíðuð 1625.
Óvinir Jóns Eggertssonar (1663), sem voru margir, komu því á flot skv. Ólafi Davíðssyni (1903) að hann hefði með konstrum fellt brúna þá Jón biskupsbróðir Þorláksson skyldi um hana fara 1670 þegar hafði klaustraskipti Möðruvalla- / Skriðu- við mág sinn, klausturhaldara og sm. Múlaþings, Þorstein Þorleifsson.
Jón Eggertsson hafði misst veitingu Möðruvallaumboðs til Jóns Þorlákssonar 1666 (sjá 1667), sem þar varð ekki vært vegna ókyrrðar af völdum nafna síns og konu hans (1694), og fékkst Þorsteinn Þorleifsson til að skipta við hann, en hann var einnig fjölkunnugur segir Bogi Benediktsson í Sýslumannaævum – sjá 1670.
Sm. Þorsteinn Þorleifsson stóð fyrir smíði nýrrar brúar 1672 sem stóð til 1695 og endurnýjuð 1700.
Þá á Bjarni Thorarensen að hafa gengist fyrir nýrri brú á Jökulsá á Dal 1835 segir Indriði Einarsson: ,,Séð og lifað”, 199.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)