Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1680
1680
1680

Nýja öxi nota þeir

Hljóðbrot0:00

Lag Litlu andarungarnir

NNýja öxi nota þeirnú að Öxará;.; fyrstur kemur, fyrstur deyrfleiri vilja' en ná;.;

Glúmur Gylfason · 1680

Heimildir og samhengi

Öldin sautjánda: ,,Einar Þorsteinsson (d.~1691), sýslumaður á Felli í Mýrdal, gaf Öxarárþingi í sumar nýja öxi.
Kom hún í góðar þarfir sem vænta mátti og var fyrstur manna höggvinn með henni Sæmundur Þorláksson, maður úr Fljótshlíð”.

Fyrr og síðar, t.d. við aftöku Jóns biskups Arasonar, er með réttu eða röngu hafður gálgahúmor eftir dauðadæmdum, svo sem: ,,höggðu betur, Sveinki”, er þeir máttu þola tugi högga með bitlausum öxum áður en af tók höfuðið., T.d. þurfti 30 högg á Þingvöllum 1650, hundrað árum eftir aftöku feðganna frá
Hólum.

Helgi Þorláksson, Á sögustöðum, bls. 65: ,,Um 1970 hafði vaknað áhugi á heldur vanræktum kafla í sögu Þingvalla ...ekki síst hvernig alþýðan birtist í dómabókum og varð að þola þungar líkamsrefsingar ...harkalega dóma, hengingar, hálshögg, brennur og drekkingar. ...Um 1970 var hljómgrunnur hérlendis fyrir að heyra hvernig Íslendingar hefðu kúgað Íslendinga"

AlfræðiNáttúruminjasafn (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1680

  • Komin brú á Brúará,
  • Viljum ekki versla nú
← 1680Viljum ekki versla nú1681 →Ættin lengi skelegg, Skarðs,