Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1690
1690
1690

Boli konu kom í hel

Hljóðbrot0:00

Lag Kálfar tveir í kúamynd

BBoli konu kom í helen kostaði hann lífiðbrögðuðust Gísla býsna velbæturnar fyrir vífið.

Glúmur Gylfason · 1690

Heimildir og samhengi

,,Kona Gísla á Hugljótsstöðum á Höfðaströnd gekk til fjár um kveld; kom í veg fyrir hana graðungur mannýgur, réðist á hana og gekk af henni dauðri.
Gísli fann þann mann er átti graðunginn og heimti bætur, en sá svaraði: ,,Nautið hefir fyrirgert sér sjálfu og ei meiru og gef ég þér það”; Gísli kvað sér það vel líka og lést ei til meira mælast, tók bola, leiddi heim og drap hann og át einætum, og þóttist vel hafa veitt; var hann síðan kallaður Gísli boli eður Bola-Gísli”.
Heimild: Saga frá Skagfirðingum I, 16 og Mælifellsannáll bls. 573.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1690

  • Dauður sigur úr býtum ber
← 1690Dauður sigur úr býtum ber1691 →Í Hítarnesi flaska finnst