Sigríður hár ei sólgyllt skar
Lag Fyrr var oft í Koti kátt
Sigríður hár ei sólgyllt skarsíst þótt ráðin skortimeð henni aldrei barr sitt barBensi og þar um orti:,,Mér hefur aldrei unnað pareða nokkuð hirt ummiðað við hennar vanhald varvistin góð hjá Tyrkjum!”
Innan gæsalappanna er tilvitnun í Benedikt Pálsson.
Heimildir og samhengi
+Sigríður stórráða Magnúsdóttir frá Sjávarborg, Skagafirði.
Fitjaannáll II, 124: ,,Benedikt Pálsson lærði bartskeraembætti í Hamborg, sigldi þaðan þá hann hafði útlært og vildi til Spanien (1633) en varð hertekinn ásamt skipi og mönnum af Tyrkjum og var hjá þeim 2 1/2 ár; var svo leystur af Hamborgurum og útborgaður af frændum sínum og vinum hér fyrir lítið miður en 1000 dali.”
Komst til Íslands 1636. Hann var fyrst ráðsmaður á Hólum en hélt síðar Möðruvallaklaustursumboð til æviloka, 1664.
Föðurafi Benedikts var Guðbrandur biskup Þorláksson. Um konu Benedikts, Sigríði (stórráðu) Magnúsdóttur frá Sjávarborg í Skagafirði, d. 1694, segir í
Eldur á Möðruvöllum, 68 og vitnað í Espólín: ,,Hún var fríð sýnum og fagurhærð, hárið gult sem silki, svarkur mikill og kölluð hin stórráða. Þótti Benedikt að betur væri hann kominn með Tyrkjum en henni".
Sigríður sór af sér ótryggð í hjónabandi á alþingi 1661.
Í Íslenskum æviskrám er Benedikt titlaður skáld enda orti hann m.a. ljóðabálk um hjónaband sitt og Sigríðar stórráðu og staðfestir þar samanburðinn við Tyrki:
,,Jeg veit það, að Tyrkinn er vondur,
og vistin þar kvalafull er,
en samt er hún Sigríður verri,
það sýnir reynslan mjer.
Ef Hundtyrkjann hingað nú bæri,
jeg hlypi' honum fagnandi mót;
hann mundi mig fjötra' og frelsa
frá flárri' og vondri snót."
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
Síðara hjónaband Sigríðar stórráðu, 1665, með Jóni Eggertssyni frá Stóru-Ökrum, heppnaðist betur, sjá 1662, 1663 og 1683.
Barna-barna-barn þeirra var Sveinn Pálsson, læknir Sunnlendinga 1799. Sjá 1633.
Viðurnefnið ,,stórráða" má vera sótt til Sigríðar stórráðu, þeirrar sem Ólafur konungur Tryggvason lét frá sér fara og varð þá drottning Sveins tjúguskeggs, Danakóngs, sem að hennar ráði gekkst fyrir aðför að Ólafi Tryggvasyni við eyna Svoldur í Eystrasalti árið 1000.