Hvað höfðingjarnir hafast að
Lag Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903
Hvað höfðingjarnir hafast aðherma er ekki gottsá má búa sig af staðog sigla af landi brott.
Heimildir og samhengi
Fram vindur máli Jóns Gvendssonar frá Klúku, sjá 1698.
Annálar III, Eyrarannáll, bls. 400: ,,Á alþingi var refst Ásmundi nokkrum Jónssyni er tekinn var í Tálknafirði í Barðastrandarsýslu fyrir lygi, hver undir votta sagt hafði að vicilögmann Páll (Vídalín) Jónsson og Ari Þorkelsson sýslumaður hefðu verið sekir í dauða Jóns heitins Gvendssonar og frá sagt með hverjum aðburðum það skeð hefði hvar fyrir þessum dreng var fyrirsögð refsing (húðlát) og dæmd landsútlegð”. (1698).
Alþingisbók, bls. 107: (Um ÁJ) ,,...ábyrgist um sjálfur sér í burtu að koma hið allra fyrsta, en hittist hann í þessu landi eftir það öll skip eru frá sigld, þá sé hann skylduglega rétttækur ...undir stórkostlega húðlátsrefsing, sem næst gangi hans lifi".
Allir ekki jafnir fyrir lögum Jónsbókar. Sektir og refsingar eru þeim mun þyngri sem sá er hærra settur sem brotið er á. Árið 1697 hafði Páll Vídalín fyrstur fengið titilinn ,,varalögmaður".
Næstum tvær aldir eru þar til allir verða jafnir fyrir lögunum í evrópu sem rekja má til áhrifa frá frönsku byltingunni 1789, sem sumir kenna/þakka gosinu í Lakagígum 1783.
Atkvæðisréttur og giftingarréttur bundinn fjárhag, stúlkur erfa hálft við bræður til 1850 og kosningaréttur og námsréttur lengi kynbundinn o.s. frv.
Þremur árum síðar, 1702, felur kóngur Páli Vídalín Jónssyni að kanna siðferðilegt ástand íslensks réttarfars.
Var það dúsa upp í Pál sökum þess að gegn vilja hans fór kóngur að tillögu nágranna hans og óvini á Þingeyrum og færði niður verðlag til að forða meiri mannfelli í aldamótaharðindunum(?). Sbr. 1700, 1701, 1702.
Helgi Þorláksson, Á sögustöðum, bls. 65: ,,Um 1970 hafði vaknað áhugi á heldur vanræktum kafla í sögu Þingvalla ...ekki síst hvernig alþýðan birtist í dómabókum og varð að þola þungar líkamsrefsingar ...harkalega dóma, hengingar, hálshögg, brennur og drekkingar. ...Um 1970 var hljómgrunnur hérlendis fyrir að heyra hvernig Íslendingar hefðu kúgað Íslendinga"