Óli bauð í Bíldudal
Lag Ó, fögur er vor fósturjörð
Óli bauð í Bíldudaler bjóst til stjórnin seljareiddi af höndum ríkisdalréð eigi lengi dveljakeypti salt en seldi fiskséður - milli élja -Espanjólar á sinn diskÓlafsfiskinn velja.
Heimildir og samhengi
Ólafur Thorlacius (1762-1815) sonur lrm. Þórðar Sighvatssonar í Hlíðarhúsum, Rvk.
Eftir verslunarstörf í nokkur ár hjá Plum, kaupmanni í Ólafsvík, keypti Ólafur Bíldudals kóngsverslun 1790 fyrir 3.304 rd; gerði út (þil)skip og sigldi með saltfisk til Spánar fyrstur Íslendinga, stundum 3 skipsfarma sama haustið og flutti salt til baka.
Almenna verslunarfélagið, alræmt fyrir maðkaða mjölið 1768, hafði nefnilega aflað markaðs fyrir íslenskan saltfisk við Miðjarðarhaf (1772).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Ólafur hafði, líkt og Bjarni riddari, nokkru síðar, hug og getu til að nýta þau sambönd og varð ríkasti maður Íslands, en fiskverð var hátt vegna Napóleonsstyrjaldanna. Vegna þeirra varð Danmörk gjaldþrota1813 og gaf Ólafur þá stjórninni hálfa tunnu af silfri til myntsláttu líkt og nokkrir danskir gerðu sem grætt höfðu á stríðinu.
Verslaði Ólafur síðar á Ísafirði og í Stykkishólmi. Kona hans var Guðrún Oddsdóttir Hjaltalín að Reyðará og sonur þeirra Árni (1802-1891), í Stykkishólmi, lærður skipstjórnarmaður, sem fyrstur skráði reglulegar veðurathuganir á Íslandi.
Oscar Clausen, Sögur af Snæfellsnesi II, 142: ,,1828 sigldi Árni galeas sínum frá Stykkishólmi til Björgvinjar og aftur til baka á 2ur vikum! og sótti þá timbrið í sitt Norska hús".
O.C., bls. 144: ,,En Árna var áreiðanlega sýnna um framkvæmdir svo sem siglingar og veiðiskap heldur en verslun ...hann tapaði á verslun sinni”.
VefurGuide to Iceland (opnast í nýjum flipa)
Vefurwest.is (opnast í nýjum flipa)
Tilvísanir: Gils Guðmundsson: Skútuöldin I, bls. 80.
Jón Þ. Þór, Ránargull, bls. 98.
HeimildBækur.is (opnast í nýjum flipa)
Jón Þ. Þór, Ránargull, bls. 107: ,,Illa gekk að fá Íslendinga á (þil)skipin (konungsverslunarinnar) og það var ekki fyrr en kom fram yfir aldamótin 1800 og íslensk þilskipaútgerð hófst að marki, að upp kom í landinu hópur manna sem kunni til verka um borð í þilskipum".