Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1875
1875
1875

Bólu-skáld að Brekku dó

Hljóðbrot0:00

Lag Augun mín og augun þín

BBólu-skáld að Brekku dóí beitarhúsi kölduort hefði Hjálmar alveg nógaustan Vatna töldu.

Glúmur Gylfason · 1875

Heimildir og samhengi

+ 5. ág. Bólu-Hjálmar Jónsson, skáld, f. 1796, sem orti ófagurt um Akrahrepp, eftir þjófaleit 10 bænda hjá honum á Bólu og eftir að honum var öðru sinni neitað um sveitarstyrk. Seinna var Hjálmari veittur sá styrkur óumbeðið.
Brekka og beitarhúsin eru í Seyluhreppi, sem er vestan Héraðsvatna, en Bóla, sem Hjálmar er kenndur við, er í Akrahreppi - austan Vatna. (1838).
Sbr. Brynjólf Jónsson frá Minna-Núpi, bls. 167 í Bólu-Hjálmars sögu.
Páll Eggert Ólason. ritar um Hjálmar á bls. 181 í Sögu Íslendinga VIII, 1.

Í bókinni Myndir úr þjóðlífinu, útg. 1958 í viðtali bls. 131, skráð 1940, segir Einar Markússon, sem oft sá Hjálmar, að þá teiknimynd sem sýna eigi skáldið hafi maður gert eftir eigin hugarflugi sem aldrei hafi Hjálmar augum litið og hann felli sig ekki við að myndin sú beri nokkurn svip af skáldinu á Bólu.

Í sama streng tekur Skagfirðingurinn Indriði Einarsson, bls. 38 í Menn og listir: ,,Af þessu (þjófaleit og 200 rd. málskostnaði) og lunderni hans varð hann bitur og illskeyttur, og orti níð um marga menn.
Austan Héraðsvatna var hann eins og vargur í véum og aldrei heyrði ég jafn illa talað um nokkurn mann í Skagafirði og Hjálmar.
Vestan Héraðsvatna átti Hjálmar þó heldur griðland, en þangað bárust þó sögurnar. ...Maður Ríkarðs Jónssonar horfir beint framan í heiminn og veit ekkert af allri þeirri óvild sem Bólu-Hjálmar vissi af utan um sig og beygði hann. Það þarf ákaflega mikinn styrk til að bera ævinlega óvild án þess að bogna undan byrðinni. Hjá Hjálmari fylgdi þessu innri byrði: óvild hans til fjölda manna, sem ekki fer betur með manninn en hin".
Þá rekur Indriði sögu sem sýnir að í Blönduhlíð komust menn í geðshræringu ef Hjálmari var hrósað svo seint sem 1925.

Indriði fékk Jónas Jakobsson, myndhöggvara, til að gera aðra mynd eftir sinni forsögn.

Lýsing er til á Hjálmari eftir Margréti Steingrímsdóttur frá Stóru - Gröf í Skagafirði: ,,Hann var stór vexti en lotinn í herðum, magurleitur í andliti, kinnfiskasoginn og kinnbeinahár, orðinn hrukkóttur í framan, augun lítil, tindrandi, lágu djúpt svo að illa sást í þau enda var hann loðbrýndur".
Tekið af bls. 46 í Jarðvistarsögu Jóa Vaff, sem Guðmundur Daníelsson bjó til útgáfu 1984.

Teymt var undir Hjálmari vorið 1875 þegar hann fluttist með föggur sínar til beitarhúsanna Brekku og hitti þar fyrir þau Rannveigu Sigurðardóttur (f.1832) og Bjarna ekkil Bjarnason (f.1826). Hálfgildings útilegufólk í mannabyggð, sem þar höfðu hlaðið sér rúmbálka og hlóðir 1874. Bjarni átti soninn Stefán í hjónabandi með annarri Rannveigu, d. 1859, en móðir hennar var bróðurdóttir Sveins læknis Pálssonar (1799). En sjálfur hafði Bjarni óviðjafnanlega söngrödd. Dóttir fyrrnefnds Stefáns Bjarnasonar var Guðrún móðir Stefáns Íslandi óperusöngvara.
(Ofanritað er tekið úr Heimildaþáttum I, bls. 128 eftir Hannes Pétursson).

Í kveðskap (Hjálmars) er hrynur og hjómur (rímið) og tónn ef sungið er. Tvíraddaður hljómur þekktist hér hér frá upphafi byggðar og þar við sat til 1854. Þetta ár eru Íslendingar nýverið byrjaðir að flytjast vestur um haf, en þar var þá frumfluttur 1. píanókonsert P. Tchaikofsky (1840-1893). Það gerði Hans von Bülow (1830-1894) í Boston Massachuttes.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1875

  • Króna er það sem koma skal
← 1874Gleymd þá voru gömlu lögin1875 →Króna er það sem koma skal