Þá sem byggja Babýlon
Lag A, b, c, d, e, f, g
Þá sem byggja Babýlonblessar landinn lon og donvissi það Jón Sigurðssonsómi Íslands, skjöldur, von:
ef að flytti yfir dröfnönnur fengi skjótt þar nöfnbetra því að búa' í Höfnbóka- una forn við söfn.
Heimildir og samhengi
Jón Sigurðsson, forseti, f. 17. júní 1811, lést 7. des. 1879 í Kaupmannahöfn, þar sem hann hafði búið frá því að hann hélt utan til náms 1833.
Níu dögum síðar lést kona hans, Ingibjörg Einarsdóttir. Líkin voru flutt til Íslands vorið eftir og útför gerð frá Dómkirkjunni 4. maí 1880.
Þar um, sjá frásögn eftir Einar Sigurbjörnsson í Frá Bjargtöngum að Djúpi 5. hefti, útg. 2012. Einnig ævisögur Jóns eftir Guðjón Friðriksson og Pál Eggert Ólason.
Um vísindastörf Jóns, sjá hér Eftirmæli 19. aldar.
Á vef Ísmúsar: ,,...stýrði söng við útför Jóns Sigurðssonar frú Olufa Finsen, kona Hilmars landshöfðingja. Hún mun einnig hafa samið að minnsta kosti eitthvað af þeim lögum sem þarna voru sungin. Einsöngvarar voru Ásta Hallgrímsson (1886) og Steingrímur Johnsen. Frú Finsen var danskættuð, fædd Bojesen, en búsett hér frá 1865 til 1883". Sjá 1824 og 1865.
HljóðritÍsmús (opnast í nýjum flipa)
Sr. Torfi K. Stefánsson Hjaltalín í Eldur á Möðruvöllum, 513: ,,Segja má að Danir hafi haldið uppi þjóðfrelsisbaráttu Íslendinga með því að sjá til þess að Jón (Sigurðsson) hefði alltaf einhver laun í Höfn (við bækur og handrit) ...þó að landinn hafi aldrei kunnað að meta þá (Dani) enda á hann það til að líta á góðvild sem veikleikamerki”.
Þegar Jóni bauðst rektorsstaða við Latínuskólann 1851, sagði hann að gyllingin færi fljótt af sér ef hann flytti til Íslands, (bréf Jóns til Gísla Hjálmarssonar 29/9 1850, sjá og ritg. Guðmundar Hálfdánarsonar, bls. 35 í Íslensk Þjóðfélagsþróun á 19. öld).
Jón Thoroddsen orti drusluna: ,,Í Babýlon við Eyrarsund vér áttum ævi stranga”, þ.e., í Kaupmannahöfn, sem vísar til Davs. 137, 1. vers og útlegðar Gyðinga í Babýlon 597-520 f. Kr. og er á bls. 478 í Þjóðlagasafni sr. Bjarna Þorsteinssonar.
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)