Ár enn frjósa á ári nýju
Lag Veik er mundin - Bj.Þ. 915
Ár enn frjósa á ári nýjueykju sparatil Ólafsvalla annexíuá ísi fara.
Brynjólfur sagðist bara vona- á brosi lumar -hjá Iðu Hvítá yrði svonaí allt sumar.
Heimildir og samhengi
Hannes Finnsson (1739-1796), var síðasti Skálholtsbiskupinn. Eftir hann var Skálholtskirkju ýmist þjónað frá Torfastöðum eða Ólafsvöllum.
Þegar Skálholt var annexía frá Ólafsvöllum á Skeiðum þjónaði séra Brynjólfur Jónsson þar til dd. 1925.
Þegar hann, ólíkindatólið, kom að dragferjunni við Iðu og sá ána reiðfæra á ís á hann að hafa sagt: ,,Það vildi ég að hún yrði svona í allt sumar". Það lá við að rættist.
Þannig er ein af mörgum þjóðsögum um séra Brynjólf á Ólafsvöllum, en þeir Skeiðamenn sem láta góða sögu gjalda sannleikans telja að eitthvað þessu líkt hafi hann sagt um freðnar mýrarnar vestan við Vörðufell áður en komið er að Hvítá hjá Iðu, en þær voru annars blautar og illfærar.
Séra Brynjólfur var sonur Jóns, ættfræðings og yfirréttardómara, Péturssonar og fyrri konu hans, Jóhönnu Soffíu Bogadóttur Benediktssonar, Staðarfelli og hálfbróðir ,,Sturlubræðra” að föðurnum. Sjálfur var hann ættfróður á við föður sinn og Hannes Þorsteinsson, sem giftur var Jarþrúði systur hans.
,,Frægastur var hann fyrir stálminni og hinn þaulfróðasti í mörgum efnum. Hann kunni embættismannaskrár Norðurlandaríkjanna utan bókar, enda hafði hann Hof- og Statskalender Dana í höndum sér á deyjandi degi". (Vörður 18. júlí 1925).
AlfræðiWikipedia (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Neðst á slóðinni Vefurlaugaras.is (opnast í nýjum flipa)
segir Ingólfur Jóhannsson, f. 1919, bóndi og ferjumaður á Iðu í Biskupstungum, frá því að meri sú sem séra Brynjólfur reið til annexíunnar, Skálholts, hafi átt það til að taka til að bíta undir honum.
Konu Ingólfs, Margréti Guðmundsdóttur, heyrði undirritaður segja þannig frá, að þegar seint sóttist hafi hryssan lagst undir presti þar við Iðu. Gera má ráð fyrir að þegar klerkur fór þannig fetið hafi hann verið í ættfræðiþönkum.
Sama saga hér: HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
Harðindin frá 1880 stóðu til og með 1888, og orti þá Matthías Jochumsson bæði ,,Volaða land" og ,,Ertu kominn, landsins forni fjandi", og hlaut svo bágt fyrir að varð að taka ,,aflausn". Á þessum árum vaxandi þjóðerniskenndar tóku margir bersögli um Ísland eins og hnýtt væri í þá sjálfa eða maka þeirra. Sbr. 1876 og 1905.
Vefuris.wikisource.org (opnast í nýjum flipa)