Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1900
1900
1900

Hirði gjörðist sjálfrátt svar:

Hljóðbrot0:00

Lag Þar sem enginn þekkir mann - Bj.Þ. 877

HHirði gjörðist sjálfrátt svar:samskot kæmu að notum,,nú borgi auðvelt ekkjurnarafgjöldin af kotum".

Glúmur Gylfason · 1900

Heimildir og samhengi

Sr. Sigurjón Einarsson, Undir Hamrastáli, 138:
,,Í septemberveðrinu mikla (20. sept.) árið 1900 fórust 15 menn úr Selárdal, flestir húsbændur hreppsins utan prestur. Eftir stóðu konur og börn. Þetta skelfilega sjóslys varð um skeið á vörum manna um land allt. Skotið var saman handa ekkjunum og safnaðist töluvert fé.
Þá var sagt að sóknarprestinum, séra Lárusi (Benediktssyni fyrr pr. þar, Þórðarsonar), hefði orðið á munni: ,,Það er gott, það er gott, þær geta þá borgað af kotunum"".
Kotin voru 8 sem Selárdalskirkja átti og og var landskuld af þeim laun prestsins.

Veður þetta kemur við sögu í ,,Langt inn í liðna tíð", bls. 75. Bókunum ber saman um fjölda látinna, en sú heimild getur báts sem róðið var frá Bakkadal og fórst í lendingu með þremur mönnum, en einum var bjargað.

Arnfirðingar þóttust þekkja séra Sigvalda í sínum prestafeðgum í Selárdal og léku ,,Mann og konu” í eigin leikgerð í Selárdal á þrettándanum 1913 og oftar, skv. sr. Sigurjóni Einarssyni, Undir Hamrastáli, bls. 27; sjá 1893til nánari skýringar.

Blaðinu Ísafold fylgdi sérstakt fylgirit í desember 1904, sem fjalllaði um samskotin áðurnefndu. Höfundur var sýslumaður Barðastrandarsýslu, Halldór Bjarnason (1863-1905).

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1900

  • Fyrir Björg og bónda í Vigur
  • Fyrir veðurs ógnum urðum
  • Í aldarbyrjun að lágu vér lutum
← 1900Fyrir veðurs ógnum urðum1900 →Í aldarbyrjun að lágu vér lutum