Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1929
1929
1929

Páfagarður gildi fær

PPáfagarður gildi færsem Guðsríki á jörðhirðir Krists og heilög mærmeð helvetískan vörð.

Kaþólskir vígja Krists- í árkirkju prýdda skartien yfir dundi fjármálafár:,,föstudagurinn svarti".

Þjóðernisofstækið keyrði um kollí kreppunni náði völdumógrynni mannslífa tók í tollí tveimur heimsstyrjöldum.

Glúmur Gylfason · 1929

Heimildir og samhengi

Sbr. neðanskráða slóð þá er annað nafn fyrir Sviss: Helvetia.
Allt frá því byrjað var fyrir alvöru í Róm á Péturskirkjunni 1506 hafa svissneskir (helvetískir) verðir staðið vörð um Páfagarð, sem þetta ár fékk viðurkenningu sem sjálfstætt ríki.
(Smella á. LateranpaktenWikiwand (opnast í nýjum flipa)).
Stærðin var sú sem verið hafði frá tíð Garibaldis, 1870, sem þá var studd einni af mörgum sýnum heilagrar Birgittu hinnar sænsku, d. 1373, og þakkað bænum hennar að páfinn sneri aftur frá Avignon 5 árum síðar, 1378, þar sem hann hafði verið frá 1309. Páfar urðu þó tveir til þrír þar til 1415 (1417) og sátu á báðum fyrrnefndum stöðum og sá þriðji í Pisa, 1409, sem dó 1417.

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Um þakólskt trúboð Frakka, sjá 1859 og 1860.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Guðjón Samúelsson teiknaði Kristskirkju, sem var vígð 23. júlí.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Páfaheimsóknin 1989
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Fimmtudag 24. október hrundu hlutabréf í verði í Kauphöllinni í New-York og þar með byrjaði heimskreppan í fjármálum.
Daginn eftir, 25. október, sýndu áhrifin sig á mörkuðum í evrópu og þess vegna ber kreppuupphafið nafn þess dags, þ.e: ,,Svartur föstudagur" í evrópulöndum.
Heimild: Der Spiegel Geschichte I, 2020, bls. 130.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Þjóðernisofstæki hafa sumar evrópuþjóðir og Japanir gengist við og horfst svo í augu við fortíð sína, t.d. þær sem fjallað er um í neðanskráðum slóðum.
Aðrar ekki. (1914, 1921, 1908, 1944). MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Þjóðernissinninn Benito Mussolini varð einræðisherra á Ítalíu 1925
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

Þjóðernissinninn Adolf Hitler komst til valda í Þýskalandi í kosningum 1933.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1929

  • Ægir drifinn Dísilvél.
  • Nú fá bændur meiri mjólk
  • Einsöngvari Karlakórs
← 1929Ægir drifinn Dísilvél.1929 →Nú fá bændur meiri mjólk