Kætast Skál- og Kols- nú holt
Lag Fyrr var oftr í Koti kátt
Kætast Skál- og Kols- nú holtkonur urðu léttarforeldranna stórt er stoltstúlkur fæddust nettar.Seinna´um aðra stendur styrstaðföst tók til varnaog báðar urðu frægar fyr'irfæðing sinna barna.
Heimildir og samhengi
Bornar í heim: Ragnheiður Brynjólfsdóttir í Skálholti 8. september og Hólmfríður Hannesdóttir í Kolsholti 30. nóvember. Þeirra getið hér m.a. 1664 og 1661.
Um Ragnheiði vísast til 1661, 1666 og 1667 á þessari vefsíðu. Ævi hennar er vel kunn og er uppistaða í skáldsögunni Skálholt eftir Jón Trausta og og óperunni Ragnheiður eftir Gunnar Þórðarson.
Foreldrar Ragnheiðar voru Margrét Halldórsdóttir (1615-1670) og Brynjólfur Sveinsson Skálholtsbiskup (1605-1675)
Ragnheiður lést 23. mars 1663.
Hólmfríður ,,prófastamóðir" fæddist í Kolsholti í Flóa. Móðir hennar var Ragnhildur Daðadóttir (~1610-1690), þær Katrín Erlendsdóttir á Stórólfshvoli systkinabörn og Skarðverjar (1648).
Faðir Hólmfríðar var Hannes Helgason, lrm. Kolsholti og Skálholtsráðsmaður, síðast getið 1649.
Hólmfríður giftist Halldóri eldra Jónssyni1664 eftir að hafa hryggbrotið nokkra efnaða biðla.
Halldór var 5. maður í beinan karlleg frá þeim risavaxna Sigvalda langalíf Gunnarssyni, sjá1652.
Hann varð prófastur í Reykholti í Borgarfirði eins og forfeður hans höfðu verið frá 1569, sjá þar.
Þau Hólmfríður komu upp 9 börnum, þ. á m. 4 prestum og urðu 2 prófastar. Annar þeirra var Jón fræðimaður í Hítardal, sem gegndi um tíma biskupsstörfum í Skálholti, en kom sér hjá að taka það embætti. Hann var faðir Finns Reykholtsprófasts eftir Hannes son Hólmfríðar og Jóns. Finnur, síðar Skálholtsbiskup, var faðir Hannesar, síðasta biskups í Skálholti þar til á 20. öld.
Finnur d. 1789, sat prófastur í Reykholti vígðist biskup til Skálholts 1754 og hafði þá ættin setið Reykholt mann fram af manni frá 1569 í um 185 ár.
Borgfirskar æviskrár kalla Hólmfríði skörung mikinn, og þar titluð prófastamóðir.
Hólmfríður dó 5. október 1731.
Ísl. æviskrár, Íslendingabók.