Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1865
1865
1865

Olufa setti ei sitt ljós

OOlufa setti ei sitt ljósundir mælikeriðí hnappagati Hilmars róshefur dýrmætt verið.

(mæliker: Matth. 5.15)

Glúmur Gylfason · 1865

Heimildir og samhengi

Olufa Finsen, dönsk, fædd Bojesen (1835-1908), fluttist þetta ár til Íslands með manni sínum, Hilmari Finsen (1824 - 1886) sem þá tók við stiftamtmannsstarfi, sem varð landshöfðingjaembætti1873 og bjuggu þau á Íslandi til 1883.
Hilmar var sonarsonur mdm. Valgerðar Jónsdóttur og Hannesar Finnssonar, biskups. (1856).
Olufa var mikill tónlistarmaður eins og rakið er á vefslóð Ísmúsar hér aftar. Hún byrjað þegar að æfa blandaðan kór á heimili sínu, sem var nýtt, og næsta víst er að það söngfólk hefur gegnt lykilhlutverki í tónlistarflutningi við útför Jóns Sigurðssonar og frú Ingibjargar, 1880, sem hér er fjallað um1879og Olufa stjórnaði. Pétur Guðjónsson dó 1877 og nemandi hennar, Jónas Helgason, tók þá við organistastarfinu.

Í bók Kristmundar Bjarnasonar, ,,Langt inn í liðna tið", frá bls. 15, lýsir Hafnarstúdent, Ari (1813 - 1881) Arason, læknis á Flugumýri, kynnum sínum af Olufu í veislum og ferðalögum tengdum konungskomunni og þjóðhátíðinni 1874 og leynir ekki aðdáun sinni. Ari setur undir hana hesta sína fram og til baka og gengst fúslega við því að þeir séu bestu reiðhestar í Skagafirði og þar með á landinu öllu enda aðrir henni ekki samboðnir: ,,...ég hafði bæði heyrt og lesið um heillaríka velvild hennar og framkvæmd við sýslu hennar hér á landi. Við töluðum dálítið um Kvennaskólann í Reykjavík og fleira. Var mér sannarlega unun að þessari litlu stundu, svo var frúin inntakandi í orðum og viðmóti. Þegar ég hafði bukket mig for Hendes Naade kallar landshöfðinginn til mín og leiðir mig til Konungs og præsenterer mig fyrir honum með of góðum orðum, þó áherzlan einkum lægi í því að ég ætti bestu hesta og hestakyn hér á landi".

Við 1824er fjallað um þátt Olufu Finsen í fjármögnun Kvennaskólans í Reykjavík 1874.

Vefur Ísmúsar: HljóðritÍsmús (opnast í nýjum flipa)

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1865

  • Af mörgum var Björgvinjarsýningin sótt
  • Fárra' er á valdi um framtíð að spá
  • Eftir mikla orrahríð
← 1865Fárra' er á valdi um framtíð að spá1865 →Eftir mikla orrahríð