Bændur vildu vera kúl
Bændur vildu vera kúlvissu um ullargæðien ekki það, að karakúlkrankar væru af mæði.
Heimildir og samhengi
,,Á kreppuárunum upp úr 1930 var ýmislegt reynt til að styrkja innlenda atvinnuvegi, m.a. með eflingu iðnframleiðslu. Til að auka fjölbreytni í landbúnaði og styrkja hinar dreifðu byggðir var m.a. flutt inn karakúlfé árið 1933, en skinn af lömbunum er í miklum metum sem loðvara. Þessi innflutningur leiddi hins vegar til mikils ófarnaðar því með fénu barst hingað hin illræmda mæðiveiki sem herjaði á sauðfé landsmanna í meira en tvo áratugi."
Heimild: Skýrsla Sauðfjársjúkdómanefndar 2001, sem Jón Torfason, sagnfræðingur, skráði á vefinn: Vefurskjalasafn.is (opnast í nýjum flipa)
Ágúst B. Jónsson á Hofi, Vatnsdal, sá sem mynd er af og vitnað í hér á öðrum stað við þetta sama ár, var trúnaðarmaður og erindreki Sauðfjárveikivarna og ferðaðist um allt land þeirra erinda.
Í hann er vitnað á ofanskráðri vefsíðu auk þess sem ævisaga hans er heimild um baráttuna við mæðiveikina.
Wikipedia telur sauðfjárkyn þetta hafa fundist í Mesopotamíu 15. öldum fyrir Krists burð, en nafnið, Karakúl, dregið af héraði sem nú er í Tagikistan.