Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1769
1769
1769

Að nú sé konungsútgerð öll

Hljóðbrot0:00

Lag Fljúga hvítu fiðrildin

AAð nú sé konungsútgerð öllengum veldur sárumgráta bændur kvaðir og köllkrókódílatárum.

Glúmur Gylfason · 1769

Heimildir og samhengi

Helgi Þorláksson, Á sögustöðum, bls. 94-95: ,,Bessastaðamenn kúguðu smábændur ...með kvöðum og köllum. ...En tímarnir breyttust og það kom ný hugsun. Búauðgisstefnan hafði áhrif á 18. öld, bændur skyldu eiga jarðir sjálfir og kvaðir voru afnumdar. Konungsútgerð var lögð niður 1769 og það dró úr kvöðum".

Helgi bendir og á að þess háttar leiguliðakúgun viðgekkst í Danmörk. Hér hefur hún mest verið á Álftanesi - í nágrenni fógeta og amtmanna sem vanir voru slíku að heiman, sjá 1681.

Í Danmörk var bændaánauðinni aflétt 1788 og er stórt og veglegt minnismerki um það á miðri Vesterbrogade í hjarta Kaupmannahafnar, en enn á eftir að reisa á Íslandi minnismerki um afnám vistarbandsins 1893 / 1894.

MyndMats Wibe Lund (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1769

  • Önnur væri okkar sýn
← 1769Önnur væri okkar sýn1770 →Nú skulu verða færri frí