Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1716
1716
1716

Vogs- í ósum vissi gerst

Hljóðbrot0:00

Lag Yfir kaldan eyðisand

VVogs- í ósum vissi gerstvirðar Eirík munameta kunni meri og hestmeira en Biblíuna.

Hvort almannarómur segði sattsýnist nokkur efien Vogsósa hefur og veröld kvattsá vissi lengra nefi.

Glúmur Gylfason · 1716

Heimildir og samhengi

Þetta ár lést séra Eiríkur Magnússon í Vogsósum í Selvogi, f. um 1638, frægur ,,galdramaður" úr ÞJóðsögum Jóns Árnasonar.
Óskar Halldórsson helgar honum blaðsíður 155 til 190 í Galdrasögum útg. 1971, sem hann valdi úr safni Jóns Árnasonar.
Í þeim sögum gafst ekki vel að ríða hesti sr. Eiríks í leyfisleysi.
Eiríkur hafði numið skólalærdóm í Arnarbæli í Ölfusi hjá séra Jóni Daðasyni (1606 - 1676) sem ættaður var frá Staðarfelli, þ.e., sveitungi Þormóðar í Gvendareyjum, sem kenndi Galdra-Lofti. (1714). Jón, lærifaðir séra Eiríks, lét eftir sig rit um gandreið og særingakvæði.
Annar sveitungi lærimeistara sr. Eiríks var lrm. Bjarni Bjarnason (1639-1723) Jónssonar yngra Magnússonar prúða, sem 1687 - sjá þar - flutt allt sitt sjóveg - á áttæringi sem hann gerði sér af rekaviði, frá Hafurshesti í Önundarfirði til Arnarbælis á Fellsströnd og fékk á sig galdraorð fyri þá siglingu, sjá 1687.

Gísli Konráðsson ritaði þátt um séra Eirík og einn af ,,Sjö þáttum" Jónasar Rafnar, læknis, Akureyri 1948, um íslenska galdramenn, fjalla um hann á bls. 101 til 139.
Sjá og Íslenskar æviskrár, 2, bls. 415.

Hér er nánar fjallað í máli og myndum um Eirík og galdrabók hans:
HeimildFerlir (opnast í nýjum flipa)

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Vefurfastinn.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1716

  • Þrætur landa þykja banal
← 1716Þrætur landa þykja banal1717 →Kaupmaður þóttist klækjum beittur: