Eftir mánuði sjö á sjó
Eftir mánuði sjö á sjósáu Papóssduggusvo bráðlega fá bændur nógaf brjóstbirtu og tuggu.
Heimildir og samhengi
Safnrit Gils Guðmundssonar, Gestur III, 193 birtir bréfkafla sr. Jóns Jónssonar (?) í Bjarnarnesi, síðar á Stafafelli. Tekið úr Norðanfara 10. júlí 1885.
Endursagt: Tíðin köld og stormasöm, aldrei dropi úr lofti í allt vor svo kýr verða ekki látnar út, flestir alveg heylausir, tjarnir allagðar ís á hverjum morgni. Enginn dráttur hefur fengist úr sjó, en talsvert aflað af hákarli.
Loksins kom Papósskipið 7. apríl eftir 7 mánaða útivist og hafði tvívegis komið laskað til Stafangurs. Þrátt fyrir það voru allar vörur óskemmdar og hefur kaupmaður Jónsen lánað öllum bágstöddum. ... Fólk hefði verið farið að falla úr harðrétti hefði skipið ekki komið á Papós.
Um Jón Jónsson, af vef Alþingis: ,,Fæddur á Melum í Hrútafirði 12. ágúst 1849, dáinn 21. júlí 1920. Foreldrar: Jón Jónsson (fæddur 25. desember 1825, dáinn 3. júní 1900) bóndi þar og kona hans Sigurlaug Jónsdóttir (fædd 24. júlí 1826, dáin 16. febrúar 1909) húsmóðir.
Bróðir Ingunnar konu Björns Sigfússonar alþingismanns".
Sjá um Ingunni1876vegna ferðalags hennar til sr. Jóns, bróður síns.
Sr. Jón ritar nafn kaupmannsins eins og sitt, en á vafalaust að vera með h, Johnsen, sbr. eftirfarandi slóð frá Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór ÞorsteinssonHeimaslóð (opnast í nýjum flipa):
HeimildHeimaslóð (opnast í nýjum flipa)