Vestur á Hellnum var og einn
Vestur á Hellnum var og einntil vandræða allan tímannvið hann réði varla neinnvíða um lönd barst glíman.
Heimildir og samhengi
Ásgrímur Vigfússon (1758-1829) oftast kenndur við Hellna, prestur þrívegis þar í Breiðavíkurþingum, þ.e., tvisvar settur frá.
Ásgrímur var fæddur á Hellisvöllum 5. júlí árið 1758. „Foreldrar: Vigfús Helgason spítalahaldari á Hallbjarnareyri og skáld og kona hans Ingibjörg Helgadóttir, tíuauraskeggs í Brekkubæ.“ Ásgrímur varð stúdent úr Skálholtsskóla 1780. Hann varð prestur í Breiðavíkurþingum á Snæfellsnesi. Hann bjó á Einarslón 1782–1787, í Brekkubæ 1787–1793 og síðan að Laugarbrekku til æviloka. Ásgrímur var smiður góður og atorkumaður í búsýslu, fróðleiksmaður og skrifaði upp handrit. Hann var ertingasamur og deilugjarn og átti í mestu erjum og mátti þola embættismissi. Hann lést 19. desember 1829. (Heimild: Íslenzkar æviskrár I, bls. 98–99).
Séra Pétur Guðmundsson fjallar ítarlega um sr. Ásgrím í Annál 19. aldar l, frá bls. 401 undir dánarári hans, 1829. Þar segir m.a. að hann hfi fengið Breiðavíkurþing 1798 eftir að hafa verið þar aðstoðarprestur frá 1781. Afsettur af synodalrétti 1794 fyrir margar yfisjónir. Reisti þá til Danmerkur og gisti að aðalsmanni að nafni Guldberg. Hafi sá ekki verið Høegh Guldberg ,,forsætisráðherra" 1772 - 1784, þá ættingi hans enda náði Ásgrímur konungsfundi og flutti honum kvæði ágætt og fékk uppreist æru og embættið að nýju. Sótti þó sambúðin við Breiðuvíkursöfnuðinn í sama farið og aftur dæmdur frá kalli 1822/3, en sr. Ásgrímur áfrýjaði til Hæstaréttar í Kaupmannahöfn og fylgdi málinu eftir þar og hafði að lögfræðingi Guldberg yngra, þ.e., son þess sem hýsti hann 1794 og vann sá málið fyrir séra Ásgrím.
Sjá enn fremur neðanskráðar slóðir:
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
Hér er Ásgrími vel borin sagan: