Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1908
1908
1908

Við Fríkirkjuveg og Vonarstræti

VVið Fríkirkjuveg og Vonarstrætivegleg rísa húsThoroddsen ef Thor þar mætitrauðla býður dús.

Glúmur Gylfason · 1908

Heimildir og samhengi

1908, þegar mest gekk á í íslenskri pólitík, fyrr og síðar, flutti aðalpersónan, Skúli Thoroddsen (1859-1916) alþm. og ritstjóri Þjóðviljans gamla, fv. kaup- og sýslumaður á Ísafirði, með fjölskyldu sína og prentsmiðju frá Bessastöðum, sem hann hafði átt og þar búið frá því skömmu fyrir aldamótin, og reisti sér stórhýsi með miðstöðvarkyndingu og raflögnum (sem biðu síns tíma): kjallari, tvær hæðir og ris, á uppfyllingu í norðurenda Tjarnarinnar í Rvk. Varð húsið nr. 12 þegar gatan fékk nafn, Vonarstræti, dregið af vonbrigðum Skúla með að verða ekki ráðherra. Húsið hefur nú verið flutt.
Auðugasti maður landsins á þeim tíma, Thor Jensen (1863-1947), reisti enn stærri og fullkomnari höll við Fríkirkjuveg 11. Hann var Heimastjórnarmaður 1908, þ.e., Hannesarmegin í pólitík, og síðar gengu börn þeirra í hjónaband, en H. Hafstein var aðalandstæðingur Skúla í kosningunum þetta ár.

Sigurður Thoroddsen verkfræðingur, sonur Skúla, hefur það í æviminningum sínum, bls. 7, eftir móður sinni, Theódóru, að Tryggvi Gunnarsson, móðurbróðir Hannesar Hafstein, hafi verið eini maðurinn sem Skúla hafi verið illa við. Og bls. 37: ,,Var það á báða bóga. ...Á hið sama bendir samræða þeirra frændanna í veislu sem Jón Laxdal hélt daginn sem pabbi var jarðaður: ,,Varstu að fylgja helvítinu honum Skúla?" sagði Tryggvi við Hannes. ,,Ég læt ekki póitískt dægurþras ná út yfir gröf og dauða," svaraði Hannes. ,,Það geri ég," svaraði Tryggvi. Frá viðræðu þessari sagði Elín Matthíasdóttir (Jochumssonar) Laxdal mömmu".
Þetta gæti rímað við það hald manna að Tryggvi hafi gert Alþingisgarðinn og látið jarða sig í honum til þess að þurfa ekki að liggja dauður nálægt Birni rh. Jónssyni. Sjá í því sambandi 1909.

Of langt yrði að telja upp öll ár sem þessara manna er hér getið, lysthafendur geta slegið inn nöfnin á leitarlínunni, sem er efst á hverri síðu.

Myndir

Einnig frá árinu 1908

  • Millilandanefndin sig mátti hvergi hræra
  • Erlendur í einni beit
  • Kvenna enginn veit nú vamm
← 1908Erlendur í einni beit1908 →Kvenna enginn veit nú vamm