Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1908
1908
1908

Millilandanefndin sig mátti hvergi hræra

Hljóðbrot0:00

Lag Vertu hjá mér, Dísa

MMillilandanefndin sig mátti hvergi hræramilli Skúla og Hannesar framastreitan löngaf ótíðindum Bjarni frá Vogi frétt kann færa:,,Fána að húni upp skal draga á landsins hverri stöng".

Glúmur Gylfason · 1908

Heimildir og samhengi

Uppkastið: Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
14. maí náði millilandanefndin samkomulagi við Dani í Kh. um stöðu Íslands í ríkinu.
Næsta dag tók stuðningsblað ráðherra, Þjóðólfur, eindregna andstöðu gegn frumvarpinu. Ritstjóranum, Hannesi Þorsteinssyni, þótti ráðherra fljótt hafa bundið trúss sitt við þrjá ,,dulklædda liðhlaupara úr flokki Valtýinga”: Jón Magnússon (1926), Guðmund Björnsson (1909) og Þórhall Bjarnarson (1905) sem með blaði sínu, Lögréttu, unnu leynt og ljóst gegn áhrifum Hannesar ritstjóra Þjóðólfs. Þess vegna áskildi hann sér rétt til að haga fylgi Þjóðólfs eins og ritstjóra best líkaði og skrifaði undir Blaðamannaávarpið 1906.

Millilandanefndina skipuðu 7 fulltrúar allra flokka sem það vildu. Þannig átti Þjóðræðisflokkur Skúla Thoroddsen þrjá fulltrúa, sem voru auk hans, Jóhannes Jóhannesson og Stefán Stefánsson, skólameistari, en þeir fylgdu þó ekki foringja sínum að málum í þetta skipti.
Skúli fór einn á annað hótel en hinir nefndarmennirnir í Höfn, sem þarf þó ekki aðra skýringu en þá að hann var fáskiptinn einfari sem mataðist heima í einrúmi nema 5 sinnum á ári ásamt með fjölskyldunni á hátíðum, sem taldar eru upp í æviminningum sonar hans, Sigurðar, bls. 35. Honum leiddust ókunnugir, sinnti ekki gestum nema örstutt (bls. 38). ,,Benedikt (Sveinsson) og Bjarni (frá Vogi) voru einu þingmennirnr ...sem komu iðulega til pabba á kontórinn. En alla jafna afgreiddi hann þá, þegar erindum var lokið með orðunum: ,,Jæja, piltar, haldið þið að það sé nokkuð fleira sem við þurfum að spjalla um?"" Bls. 40.

Ágreining gerði Skúli í nefndinni þegar gengið hafði verið frá samkomulagi og ekki varð aftur snúið og var sá ágreiningur um tvö orð. Uppkastið hafði: ,,Ísland er frjálst og sjálfstætt land", en Skúli: ,,Ísland er frjálst og fullvalda ríki".
Um orðin: land / ríki, stóðu síðan hörðustu átök í íslenskri (persónu)pólitík fyrr og síðar þrátt fyrir að Blaðamannaávarpið hafði haft ,,land".

Sverrir Kristjánsson, Ritsafn I, bls. 222: ,,...þegar hann (Jón Sigurðsson) veltir fyrir sér þjóðréttarlegum tengslum Íslands og Danmerkur kemst hann jafnan að þeirri niðurstöðu að þar sé um eins konar ríkjasamband að ræða. Þó kallar hann Ísland ...hvergi ,,ríki". Hann kallar það ,,frjálst sambandsland" ...en aldrei ríki".
Hjá Sverri kemur og fram (Ritsafn III, 122) að í ályktun Þingvallafundar 1850 og síðan hafi verið orðalagið ,,frjálst sambandsland Danmerkur". Fyrstur til að nefna Ísland ríki mun hafa verið Friðrik VIII. í tölu á Kolviðarhóli 1907: ,,ríkin mín tvö" og hlaut áminningu frá forsætisráðherrra. Næstur er svo Skúli.

6 helstu blöðin börðust öll á móti Uppkastinu á forsendu Skúla. Ritstjórar þeirra höfðu þó allir skrifað undir Blaðamannaávarpið 1906, sem Einar Benediktsson gekk með á milli þeirra og sagðist hafa samið (Guðjón Friðriksson: E. Ben. I, 344).
Upphaf þess hljóðaði svo: ,,Ísland skal vera frjálst sambandsLAND við Danmörku". (Leturbr. annálsvert.is) Sjá og 1910.

Einar Laxness, Íslands saga III, 150: ,,Þingvallafundur var boðaður 1907 af ýmsum blaðaritstjórum, sem staðið höfðu að blaðamannaávarpinu 1906; voru þar áréttaðar kröfur um fyllstu þjóðréttindi landsmanna, þ.á.m., að væntanlegur sambandssáttmáli við Dani ,,verði gerður á þeim grundvelli einum, að Ísland sé frjálst LAND í konungssambandi við Danmörku..."" (Leturbr. annálsvert.is).

Skúli og Hannes höfðu verið keppinautar um forystu í Skólafélagi Lærðaskólans, Bandamannafélaginu, og Skúli orðið undir. Þeir ,,flokkadrættir héldu áfram í Kaupmannahöfn”. (Einar Laxness, Ísl.ands Saga III, 113.)

Þorsteinn Thorarensen: ,,Í fótspor feðranna, bls. 289": ,,Allur áróðurinn um orðalag frumvarpsins var bersýnilega útúrsnúningur - algerlega út í hött".

,,Það voru sárir menn, Skúli, Hannes ritstj. Þorsteinsson og Bjarni frá Vogi, er fögnuðu sigri þegar Uppkastið féll. Björn í Ísafold varð ráðherra, en ekki Skúli, sem sat eftir með sárt ennið í húsi sínu við Vonarstræti".

Bls. 337: ,,Er alveg furðulegt hvernig hægt var að rífast í það óendanlega út af ómerkilegum formsatriðum, en segja má að í þrjá áratugi hafi ekki verið deilt um annað meira í íslenskum stjórnmálum en ríkisráðsákvæðið og þær deilur voru verulegur hluti af öllum áróðrinum gegn Uppkastinu".

Bjarni frá Vogi (1863-1926) - ,,staðfastur í skaplyndi”, voru minningarorð þingforseta um Bjarna látinn, sem vikið hafði verið frá Lærðaskóla 1904 (sjá 1899), elt Skúla til Hafnar, stappað í hann stálinu og sent skeyti: ,,Upp með fánann – ótíðindi!”.

Íslandssagan í máli og myndum, bls. 272: ,,...andstæðingar Uppkastsins, margir hverjir, höfðu misst allt jarðsamband".
Niðurstaða kosninganna talin eiga þátt í að bankar í Danmörk hættu að lána Milljónafélaginu, sem þá hætti rekstri 1912.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Heimildir og tilvitnanir:
Gunnar Þór Bjarnason: ,,Upp með fánann” Rvk. 2013 (Bláhvítinn);
Ævisaga Hannesar Þorsteinssonar 1960, bls. 280-2, 300, 319;
Vilhjálmur Þ. Gíslason í Blöð og blaðamenn, Alm. bókafél., bls. 247.
Brautryðjandinn, Skálholtsútgáfan 2011, bls. 224;

Guðjón Friðriksson, Einar Benediktsson I, 339, 344.
Af 1. b. ævisögu síra Magnúsar Blöndal Jónssonar, útg. Ljóðhús 1980, skýrist hið ,,staðfasta skaplyndi” Bjarna frá Vogi með því ,,uppeldi” sem þeir bræður hlutu hjá föður sínum, prestinum, sem var áður en barnaverndarnefndir og kvennaathvarf komu til sögu.
VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)

Sjá og 1918.

Myndir

Einnig frá árinu 1908

  • Erlendur í einni beit
  • Við Fríkirkjuveg og Vonarstræti
  • Kvenna enginn veit nú vamm
← 1907Falskir miðlar féllu í trans1908 →Erlendur í einni beit