Prestinn Hvamms í fjöru flæddi
Lag Kross á negldur - SSB 114
Prestinn Hvamms í fjöru flæddifannst það á er víman mæddiölsins höfgi á er sveifGuðs og þótti mesta mildimoldin þá við andann skildijarðnesk eftir lægi leif.
Heimildir og samhengi
Óttar Guðmundsson: Tíminn & tárið, bls. 77: ,,Í Kjósarannál 1645 er frá því skýrt að þeir séra Þorsteinn Tyrfingsson frá Hvammi í Norðurárdal og Benedikt Björnsson í Bólstaðarhlíð hafi sótt veislukost í brúðkaup Benedikts og (Guðrúnar) dóttur séra Þorsteins. Þeir riðu vel drukknir á undan lestinni og áðu. Þar sofnuðu þeir niðri í flæðarmáli og hafði flætt undir þá þegar lestin kom að. Varð Benedikt vakinn, en prestur örendur".
Íslenskar æviskrár, V, 231, segja m.a. um sr. Þorstein: ,,Andaðist snögglega á Haffjarðareyjarsundi á heimleið (féll drukkinn aftur af hesti sínum, segja aðrir)".
Einar Hólabiskup var sonur séra Þorsteins og k.h., Jórunnar Einarsdóttur, prests á Melum Þórðarsonar. Um Einar biskup, sjá 1692.